Morgunn - 01.12.1924, Blaðsíða 4
114
MORGUNN
Á þeim dögxun, þegar sorgin var svo almenn og ástvina-
missirinn, og rödd Rakelar heyrðist nm alt landið, varð mér
það ljóst, að þekkingin, sem eg hafði fengið, væri ekki ætl-
uð mér einum til huggunar, en að guö hefði gefið mér mjög
sérstaka aðstöðu til þess að eg skyldi flytja þessa þekkingu
heiminum, sem þarfnaðist htennar svo átakanlega.
Innan hreyfingarinnar hitti eg marga menn, sem sáu:
sannleikann jafn-ljóst og eg sá liann. En svo var mikil há-
reystin í „trúmönnunum“, er voru að setja sig á móti
því, sem er hinn sanni kjarni í lifandi trúarbrögðum, í „vís-
indamönnunum", sem voru að brjóta fyrsta lögmál vísind-
anna með því að kveða upp dóm um það, sem þeir liöfðu ekki
rannsakað, og í blöðunum, er lýstu sérhvern verulegan eða
ímyndaðan óþokkaskap einkenni á andlegri hreyfingu, sem
þau höfðu aldrei skilið — svo mikil var þessi liáreysti, að
þessir einlægu memi virtust vera sneyptir og kveinkuðu sér-
við því að birta almenningi skoðanir sínar. Það var í því
skyni að berjast gegn þessu, að eg hóf herferð mína árið 1916,,
og henni getur ekki lokið fyr en með andláti mínu.
Eina stórkostlega aðstoð hefi eg liaft. Konan mín hafði.
alt af verið andvíg hinum sálrænu teftirgrenslunum mínum;.
lienni fanst málið ískyggilegt og hættulegt. En reynsla sjálfr-
ar hennar sannfærði hana bráðlega um það, að svo var ekki,.
því að bróðir hennar, sem fallið hafði við Mons, gerði vart
við sig hjá okkur með einkar sannfærandi hætti. Frá þeirri
stund gekk hún, með því þrteki óskiftu, sem hennar göfuga'
eðlisfar er gætt, út í starfið, sem fram undan okkur lá.
Ilún er ástrík móðir, en hefir oft neyðst til að yfir-
gefa börn sín; hún hefir miklar1 mætur á heimili sínu, en hef-
ir orðið að vera að heiman marga mánuði í einu; hún lcvíðir-
fyrir sjónum, en hefir fagnandi verið förunautur minn á sjó-
ferðum mínum. Við liöfum nú ferðast röskar 50 þúsund míl-
ur í þessum erindum okkar. Við liöfiun talað frammi fyrir-
fjórða parti af miljón manna. Hæfileikar hennar til að um-
gangast menn, skýr og heilbrigð skynsemi liennar, áhugasöm
góðgerðasemi hennar og yndisleikur hennar á ræðupöllunum;