Morgunn - 01.12.1924, Blaðsíða 5
MORGUNN
115
— alt hefir þetta, í sambandi við ráðleggingar hennar og
samúð, verið mér svo mikil hjálp, aö það hefir breytt starfi
mínu í fögnuð. Líka liefir það verið okkur báöuni léttir að
geta haft blessuð börnin okkai með okkur á ferðunum.
Auk þeirra tveggja bæklinga, þar sem eg hefi lagt rök-
semdir mínar fram, liefi eg ritað „Ferðalög eins spíritist-
ans“ (The Wanderings of a Spiritualist), og þar getur les-
andinn fylgt mér í starfi mínu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Því næst getur hann lesið í „Ameríkuæfintýrum mínum''
v Ameriean Adventure), hvernig við fluttum boðskapinn um
eystri liluta Bandaríkjanna, landið, þar sem þaö stórvirki
tókst fyrst að brjóta skarð í garðinn milli lieimanna.
Nú hefi eg í síSara bindi af „Ameríkuæfintýrum' ‘ mínum
skýrt frá öllu, sem henti okkur á okkar löngu og erfiðu ferð
1923, þegar við fórum yfir Bandaríliin og héldum heim aftur
Canada-leiðina, og fluttum erindi í öllum stórbæjum á leið-
inni. Eg ætla lekki að fara út í þessi efni, því aS eg hefi
þegar skýrt frá þeim svo nákvæmlega, og verð að láta mér
nægja, að vísa þeim lesendum, sem lcunna að hafa áliuga á
þessum efnum, á þær bækur, sem eg hefi nefnt.
Sem stendur gera menn sér ekki ljóst, live mikilvægar
slíkar frásagnir eru, en sá dagur mun koma, og það bráðlega,
þegar mönnum fer að skiljast það, að það mál, sem vér er-
um nú að berjast fyrir, er milcilvægasta málið, sem komið
hefir upp á tvö þúsund árum í veraldarsögunni, og starf-
semi brautryðjendanna mun þá vekja verulegan áhuga hjá
öllum mönnum, sem hafa nægilega skynsemi til þess aö gera
sér grein fyrir framförum í hugsanalífi mannanna.
Ai'leiöingamar af fyrirlestraferðum mínum hafa ávalt
verið tvenns konar. Að öðru leyti hafa þær valdið miklum
umræðum, svo að eg tali sem gætilegast, á þeim stöðum, þar
sem erindin hafa verið flutt, og að hinu leytinu hefi eg var-
ið öllum ágóða af erindum mínum til þess að efla málefnið
<>g styðja starfsmenn þess, er mikið hafa lagt í sölurnar fyr-
ir það, og standa eMd jafnvel aö vígi og eg.
8*