Morgunn - 01.12.1924, Page 49
MORGUNN
159
■og ef til vill fengist einhver niðurstaða, sem aS haldi megi
koma. Þannig mun vera farið a‘5 í öðrum efnum. T. d. þeg-
ar efnafræðingar leita að og liugsa sjer að ná einhverjum
ákveðnum árangri, þá munu þeir gjöra allar hugsanleg-
ar tilraunir og blanda efnum sem líldegast til þess, að árang-
urinn náist, en sjálfsagt hafna því, sem reynsla sýnir að spill-
ir honum.
Jeg sagði hin „rjetttrúuðu vísindi,“ því að það mun vera
til rjetttrúnaður í vísindum ekki síður en í trúarbrögðum, rjett-
trúnaður, sem eins og dregur hring í kringum sig, sem hann
nauðugur vill fara út fyrir eða hleypa neinu inn fyrir utan
.að komandi.
Það mætti hugsa sjer það, sem átt er við með „þröng-
sýni“ fólgið í því, að þessi hringur hafi nokkuð stuttan
„radius“, eða geti með öðrum orðum orðið noltkuð þröngur.
Það er ef til vill eðlilegt, að hann sje ekki lengdur takmarka-
laust, en þó mun mega telja betur farið, að jafnan hefur
farið fram mikil starfsemi utan þessa hugsaða hrings, og árang-
urinn af þeirri starfsemi smásaman teygt sig inn fyrir hann
og unnið sér þar heimilisfang. Þessu verður ekki neitaö á
sviði trúiarbragðanna, og sama hefur átt sjer staS á sviSi
vísindanna. Dr. Jenner, Pasteur, Stephenson o. fl. hafa á sín-
um tíma verið með kenningar sínar fyrir utan hringinn, en
eins og við vitum, komust þeir inn fyrir. Mjer þykir ekki
fjarri að liugsa sjer, að sá tími komi, að sálarrannsóknirnar
hafi svipaða sögu að segja.
En hvaðan gat mjer þá komið áiteði til þess að hafa þau
ummæli, sem jeg áðan gat um, að fyrirbrigðin væru vísinda-
lega sönnuð?
Jeg er vitanlega enginn vísindamaður, og jeg hef eldci
■átt kost á að fást neitt við sálarramnsóknirnar.
En jeg vil benda á, að jeg tel mig geta staðhæft, að það
sjeu góð vísindi, að unnt sje að reikna út, hvaða ár og dag
og stund sólmyrkvi verði eða hajastjarna sjáist, þó að jeg
hafi sjálfur enga þekking á þeim útreikningum, að eins svo