Morgunn - 01.12.1924, Síða 50
160
MORGUNN
mikla almenna fræðslu um þessa hluti, að jeg get eins og:
við öll, fullyrt, að þetta sje áreiðanlegt.
Fyrir sams konar fræðslir um sálarrannsóknirnar hugð-
ist jeg ekki þurfa að liika við að fullyrða, að sálarrannsókna-
fyrirbrigðin gjörist, aö þau ómótmælanlega eða þrátt fyrir
nokkur mótmæli, sem jafnan eru á sveimi, sjeu orðin áreið-
anleg staðreynd, svo að jafnvel menn, sem í rauninni hafæ
ýmugust á þeim og vildu víst helzt geta snúið þessu öllu upp>
í fjarstæðu, takh þó óhikað með í þann streng, aS fyrir-
brigðin gjörist áreiðanlega, eins og t. d. prófastur Martensen-
Larsen, auk alls þess fjölda vísindamanna og gáfaðra menta-
manna og rithöfunda, sem látið hafa uppi óhikað sama álit.
á þessu fyrir eigin reynslu.
Þessa almennu fræðslu hef jeg fengið, eins og líklega við
öll, bæði nokkuð fyrir starfsemi þessa fjelags vors og einnig
fyrir þó nokkurn lestur bóka um málið, sem fyrir mitt leyti
mætti þó vera enn meira en atvik og kringumstæður liafa
gefið mjer kost á, en þó samt svo mikið, að við höfum feng-
ið þá kynning af málinu, að ekki er hægt að komast hjá, að;
gjöra sjer heildarliugmynd um, hvað hefur verið að gjör-
ast víða í löndum, og komast að áldka fastri niðurstöðu eins
og um önnur vísindi, sem við að vísu kunnum lítið í, en vitunr
þó að eru góð og gild.
Sjerstaklega þótti mjer ágrip þessarar fræðslu vera sett
fram í aðalatriðum, stuttlega en þó Ijóst, í ritgjörð eða blaða-
grein eptir einn af nafnkendustu sálarrannsóknamönnum,.
sem uppi eru, Dr. Gustave Geley í P.arís. Og það var nú
það, sem jeg hafði að bjóða yður upp á í kvöld, eptir sam-
ráði við forseta, að láta yður heyra þessa grein. Það tekur
ekki langan tíma. Hún stóð í fyrra í merku stórblaði í París,
sem heitir Le Figaro.
Jeg vil benda á, að blaðið, sem fer gætilega og sízt læt-
ur uppi sjálft neina trúarjátningu, telur sjer þó skylt, að
afla lesendum sínum fræðslu um málið, og þykir þá ráðlegast
að fá hana hjá þeim manni, sem hefur þekkingu á því slíkæ
sem Dr. Geley.