Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 11

Morgunn - 01.12.1954, Page 11
Hverjir urðu fyrir valinu? Ræða flutt í Tilraunafélaginu á jóladag 1907. Eftir HaralcL Níelsson. ★ MORGNI er mikil ánægja að birta lesendum sínum þessa jóla- prédikun, fyrstu spíritistaprédikunina, sem séra Haraldur flutti, fyrstu prédikunina, sem spíritisti flutti á íslandi. Hún var ekki flutt í kirkju, heldur í Tilraunafélagshúsinu við Ingólfsstræti, og ekki fyrir venjulegum söfnuði, heldur fyrir fólkinu, sem var að leggja grundvöll spíritismans á íslandi, fólkinu, sem var að gera hinar árangursríku tilraunir með miðilsgáfu Indriða Indriðasonar. „Og sjá, engill drottins stóð hjá þeim og birta drottins ljómaði kringum þá“. Þegar við vorum börn langaði okkur öll til þess að heyra sögur. Það var tilbreytni í því að hætta leikjunum og ærsl- unum og setjast til fóta einhverjum og hlusta á sögur. Það var gott að hvíla sig á því, og það var nautn fyrir barnssálina að berast á vængjum ímyndunarinnar út í heiminn — þennan stóra, stóra heim; í baðstofunni var svo þröngt, leikvöllurinn svo lítill; þar bar svo fátt fyrir augun; en útþráin vaknaði snemma. Bezt þótti mér að setjast hjá mömmu, þegar hún mátti vera að því að segja okkur sögu. Og allra mest gaman var að ævintýrunum. í þeim gerðust svo furðulegir hlutir, og í þeim gerðist svo mikið. Þar var tilbreytnin frá daglega lífinu átakanleg- ust. Flestum ævintýrunum þeim er ég nú búinn að gleyma. Þó er eitt þeirra, sem ég enn man, eitt þeirra, sem við öll munum enn, eitt ævintýr, sem aldrei gleymist. Og þetta ævintýr er sagan um fæðing litla barnsins í jötunni í Betlehem, sagan um fjárhirðana úti í haganum og engil-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.