Morgunn - 01.12.1954, Qupperneq 78
156
MORGUNN
að fá einkafund hjá frú Thompson. Á síðustu stundu gat
Aðalsteinn ekki farið, en bróðir hans, Viggó Maack, fór
með mágkonu sinni. Miðillinn hafði aldrei séð þetta fólk
áður. Óðara og fundurinn hófst sagði stjórnandinn við
þau, að þau væru ekki hjón. Hann snéri sér þá fyrst að
unga manninum og sagði við hann: Þú ert arkitekt, bygg-
ingafræðingur eða eitthvað þess háttar. Þú hefur eitthvað
haft að gera með Ameríku. Maack er verkfræðingur og
lærði í Ameríku. Þá lýsti hann föður mannsins, en gat ekki
náð nafninu betur en með k-o-hljóði. Hann sagði síðan frá
látnum bróður mannsins. Þá sagði hann við unga mann-
inn, að hann hefði nýlega skipt um húsnæði, en samt væri
önnur húsnæðisbreyting í vændum. Hvort tveggja var al-
veg rétt. Hann lýsti nákvæmlega veikindum heima hjá
ekkju bróður Viggós Maack og sagði, að þessi ekkja væri
nýflutt. Það var rétt. Ennfremur sagði hann, að við inn-
ganginn í húsi hennar væri eitthvað athugavert, þar stæði
látni maðurinn hennar, Pétur Maack, til þess að hjálpa
þeim, sem gengju þar um. Þetta þótti athyglisvert vegna
þess, að þarna er stigagangurinn handriðslaus og þannig
nokkur hætta fyrir þá, sem upp koma. Þá snéri stjórnandi
frú Thompson sér að ungu konunni og lýsti látinni móður
hennar og nefndi „Sig . . .“, en hún hét Sigríður. Þá sagði
hann frá bróður ungu konunnar, sem dó í barnæsku, og
taiaði um einkamál ungu konunnar og manns hennar i
sambandi við húsnæði þeirra. Því næst sagði stjórnand-
inn, að Pétur Maack, ungi, sem væri látinn, vildi minna
Aðalstein bróður sinn, mann konunnar, sem fundinn sat,
á úrið, og kvaðst vita, að dálítið væri að því, sem auðvelt
væri að laga aftur. Þetta könnuðust fundargestir við þann-
ig, að Pétur heitinn hafði gefið Aðalsteini bróður sínum
úr í fermingargjöf, en nú er trekkjarinn af því brotinn.
Þá lýsti hann alveg rétt sjúkleika, sem Aðalsteinn hefur
verið haldinn af um skeið.
Allt eru þetta hversdagslegir hlutir, en mörgum mun
finnast gildi þeirra verða meira en hversdagslegt, þegar