Morgunn - 01.12.1954, Blaðsíða 8
86
MORGUNN
Brezkir
kirkjumenn.
ar í London, og tóku ýmsir kunnir menn til máls. Fundar-
stjórinn var Sir Cyril Atkinson og mælti á þessa leið:
„Maðurinn hefur snúið baki við Guði. Ekki til að aðhyll-
ast aðra guði, heldur guðleysi. Trú á fram-
haldslíf er grundvöllur allra trúarbragða.
Ef dauðinn er endir alls, verða öll trúar-
brögð einskis virði“. Hann minntist á andstöðu þá, sem
komið hefur fram innan kirkjunnar gegn þessum samtök-
um og sagði: „Ég held að svona gamalmennaþvættingur
hafi aldrei sézt á prenti fyrr. Ég skrifaði andsvar (gegn
mótbárunum í blaðinu Church Times). Tveir samherjar
mínir gerðu hið sama. Blaðið hefur stungið öllum bréfum
þessum undir stól“. Þá gaf hann orðið séra W. Charles
Harrington, sóknarpresti við Allra-heilagra-kirkjuna í
Nottingham. Honum fórust þannig orð: „Ég tala sem
prestur, heilshugar hollur þeirri kirkju, sem ég þjóna“.
Hann lýsti yfir þeirri sannfæring sinni, að sálrænt fólk,
gætt miðilsgáfu, hefði verið til á öllum öldum, en kvað
suma þá, sem ekki ættu að koma nærri sálrænum tilraun-
um, vera að fúska við þær. Þá tók til máls séra F. S. W.
Simpson, sóknarprestur í Shoreham, Sussex. Honum fór-
ust þannig orð: „Nú á tímum kalla háværari raddir en
* , .... nokkuru sinni fyrr á kirkjurnar, að þær
Hvaðan hofum .... , , * , .
. ? færi sonnur a það, sem þær kenna. Vif,
höfum ekki nokkrar aðrar sannanir tii
að halda að efnishyggjumönnunum fyrir því að lífið haldi
áfram eftir dauðann en þær, sem sálarrannsóknirnar hafa
leitt í ljós. Margra ára rannsóknir sýna, að til eru góðir,
illir og einskisverðir miðlar. Þeir fylgja ekki allir spírit-
istakirkjunum, sumir þeirra fylgja hinum gömlu kirkju-
deildum vorum. Ég hef haft kynni af mörgum miðlum,
sem aldrei hafa gefið sig að opinberu miðilsstarfi. Við
stöndum í mikilli þakkarskuld við þá einstaklinga, sem
borið hafa merki sannleikans, þrátt fyrir hlátur manna,
háð og spott. Spíritistakirkjurnar eru aðeins til vegna
þess, að við höfum vanrækt sannleiksleitina í kristnu