Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 58

Morgunn - 01.12.1954, Page 58
136 MORGUNN eplatrénu okkar, og þeir voru fegurri en orð mín fá lýst“. Hjúkrunarkonan bætir hér við: „Þetta er þeim mun merki- legra, sem frú X. trúði ekki á engla og trúði ekki á fram- haldslífið, alls ekki“. Eftir að hjúkrunarkonan hafði gefið henni meðal, sagði hún: „Nú ætla ég alltaf að gera það, sem þið biðjið mig um“. Þegar læknirinn kom inn í sjúkra- stofuna endurtók hún þetta allt við hann, en þegar hann hló og sagði, að hún hefði alls ekki verið dáin, sagði hún: „Verið þér ekki að hlæja. Þetta er allt satt. Ég hef séð englana og nú er ég búin að ganga í gegnum dauðann“. Hjúkrunarkonan bætir þessu við: „Þegar andi hennar skildi endanlega við líkamann tuttugu og fjórum stund- um síðar, var andlát hennar eins og barn væri að sofna sætt og vært“. Þessi sama hjúkrunarkona komst síðar sjálf í opinn dauðann. Hún segir svo frá því: „Ég heyrði lækninn segja við hjúkrunarkonuna: Getið þér ennþá fundið slagæðina, hjúkrunarkona? Mér fannst eins og ég heyrði rödd hans úr fjarlægð og ekkert svar. Þá brýndi hann róminn og bað mig að rísa upp, og ég heyrði sjálfa mig svara: Nei, það vil ég ekki. f þessu ástandi mínu var faðir minn, sem fyrir nokkurum árum var látinn, hjá mér, og ég sá líka andlit elsku bróður míns, sem drukknaði, þegar ég var lítil telpa. En, æ, hliðunum var lokað fyrir mér og ég varð að koma aftur til jarðlífsins. Ég bið lesendurna að taka eftir, að ég segi: Æ“. Vitnisburður sérfræðinganna styður það, sem ég er að segja. Sir H. Thompson segir: „Niðurstaðan af nákvæmri athugun minni við fjölmarga dánarbeði er sú, að sjúk- dómskvalir í andlátinu séu afar fátíðar“. Sir Frederick Treves, sem var læknir Bretakonungs, segir í endurminn- ingum sínum: „Það, sem kallað hefur verið dauðaangist, finna þeir frekar, sem standa við dánarbeðinn, en sjúkl- ingurinn sjálfur. Síðasti sjúkdómurinn kann að vera lang- ur, þreytandi og þjáningafullur, en síðustu agnablikin eru þjáningalaus. Hinn deyjandi maður sýnist stundum berj-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.