Morgunn - 01.12.1954, Blaðsíða 7
MORGUNN
85
Spíritismi á
NorSurlörídum.
vitleysu hefði ég aldrei sagt, hér hefði hinn erlendi blaða-
maður misskilið málið. Þegar ég kom í íslenzka sendiráðið
í Osló var mér bent á þetta ranghermi í tveim norskum
blöðum. Ég fór þegar í ritstjórnarskrifstofu þess blaðsins,
sem heimilisfang á í Osló, og leiðrétti ranghermið með út-
drætti úr handriti mínu frá Helsingfors. Kom leiðréttingin
þar þegar næsta dag. Hinu blaðinu sendi ég leiðréttingu
til Trondheim, en um hana veit ég ekki frekar. Annars
mun öllum þorra fólks kunnugt, hver mishermi verða tíð-
um, er fréttaritarar segja frá í blöðum sínum máli, sem
þeir bera sjálfir lítið skyn á, og kæra sig kannske misjafn-
lega mikið um að þekkja.
Ég hygg spíritismann á Norðurlöndum standa á vega-
mótum. Sumum beztu mönnum hreyfingarinnar er ljóst,
að starfsaðferðirnar hafa ekki verið heppilegar og að gætt
hefur um of manna, sem hafa fjarlægzt
sjálfar sálarrannsóknirnar, en gefið sig
á vald viðsjárverðum barnaskap. Or-
sökin er sú ekki sízt, að miðlarnir hafa farið, sumir hverjir,
út fyrir verksvið sitt. Þeir hafa ekki tollað í félögum þeim,
sem þjálfuðu þá, en myndað sjálfir utan um sig eigin félög
með „trúuðu“ fólki, og orðið eins konar spámenn fyrir
„hópinn sinn“. En þá hefur leiðin opnazt fyrir margs
konar öfgum. Fátt er hættulegra innan spíritismans en
þegar miðlarnir fara að gerast prestar fyrir hóp trúaðra.
Pyrir þessari freistingu hafa ekki fáir miðlar fallið og
farið að stunda það lítt hugnanlega miðilsstarf, að flytja
svonefndar transprédikanir. Á þessu hefur borið nokkuð
á Norðurlöndum, einkum í Danmörk, eins og raunar jafn-
vel á Englandi. En beztu mönnum hreyfingarinnar er nú
að verða ljóst, að gegn þessu þarf að vinna. Að því vildum
við vinna, íslendingarnir tveir, sem sóttum þingið fyrir
hönd S.R.F.f.
MORGUNN hefur áður sagt frá hinum merku samtök-
um brezkra kirkjumanna til að kynna sér sálarrannsóknir
°g spíritisma. í októberbyrjun sl. boðuðu samtökin til fund-