Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 50

Morgunn - 01.12.1954, Side 50
128 MORGUNN ar. Og í þingbundnu konungsríki fer ráðuneytið með um- boð konungsins og stjórnardeildirnar með umboð ráðu- neytisins. Þannig kom það í hlut skrifstofuvalds verka- mannastjórnarinnar norsku að segja til um, hver væri hin sanna og rétta kenning um helvíti. Blöðin, sem andvíg voru prestaveldinu, kröfðust þess, að helvíti væri numið úr lögum. Sjónarmið þeirra var, að það væri vansæmandi menningarþjóð að trúa slíkum þvætt- ingi. Og var ekki, þegar allt kom til alls, konungurinn, þ. e. a. s. ríkisstjórnin höfuð kirkjunnar? Var það þá ekki rétt af ríkisstjórninni að nota nú vald sitt til þess að breyta kenningu kirkjunnar og „sýkna“ biskupinn? Pró- fessor Frede Castberg, háskólakennari í lögum, reit fræði- lega grein til að sanna, að ríkis, ríkisvaldið gæti breytt kenningum og helgisiðum kirkjunnar nær sem því þóknað- ist. Og Dagbladet, sem andvígt var klerkunum, studdi málstað prófessorsins með því að hella úr skálum reiði sinnar yfir því, að norska heimatrúboðið vildi láta ríkið annast útgjöld kirkjunnar, án þess að hafa nokkuð um málefni hennar að segja. Það, sem stjórnin gerði, var það, að hún spurði um álit hinna biskupanna og tveggja for- stöðumanna guðfræðideildanna í landinu (guðfræðideildar háskólans og prestaskólans, sem Hallesby-sinnar stjórna). 19. febrúar 1954 var þessari „rannsókn“ á vítiskenn- ingunni og Schelderup biskupi lokið og niðurstaðan var birt. Eins og við mátti búast, greindi hinar tvær guðfræði- stofnanir algerlega á um málið. Hallesby hafði verið kenn- ari við annan prestaskólann í um það bil 30 ár, en Schelde- rup biskup er kandídat frá guðfræðideild háskólans. Að- eins einn biskupanna í landinu áleit Schelderup hafa brot- ið embættisheit sitt og gengið til andstöðu við játningu kirkjunnar. Niðurstaðan var því sú, að Schelderup biskup var „sýknaður“. Deilan varð ekki endanlega leyst. Helvíti varð ekki numið úr lögum í Noregi. Það setti aðeins niður, svo að mönnum var leyft að trúa hverju sem þeir vildu um það.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.