Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 13

Morgunn - 01.12.1954, Side 13
MORGUNN 91 Þegar við stækkuðum og komumst út í lífið, þá fengum við að sjá þennan stóra, stóra heim. En flestum reyndist minna þar af ævintýrunum en hann hafði hugsað. Líf flestra verður vanalegast fremur tilbreytingalítið, hver dagurinn er öðrum líkur, og mörgum finnst lífið líkara leiðinlegri sögu en tilkomumiklu ævintýri. Við flest mun- um játa, að svona hafi oft verið um okkur; svona hafi ævi okkar flestra farið. Og sízt af öllu hefðum við vænt þess, að sjá líf okkar breytast í ævintýr. Fyrir svo sem tíu ár- um mundi ekkert af oss hafa látið sér til hugar koma, að nokkuð, sem skylt ætti við ævintýrið á Betlehemsvöllum, mundi fyrir oss bera í lífinu. Og þó hefur einmitt það að borið. Annars væri þessi félagsskapur ekki til. Félags- skapur vor er einmitt orðinn til af því, að sögur ganga af því víða um heiminn, að hinir furðulegustu ævintýravið- burðir séu aftur teknir að gerast meðal mannanna. Hinir furðulegustu, segi ég, já, alveg ótrúlega furðulegir, en líka alveg dásamlegir. Því að þeir eru sagðir sömu tegundar og sá atburður, sem gerðist á Betlehemsvöllum; englar eru farnir að birtast mönnunum, sendiboðar frá Guði, til þess að boða oss jarðneskum mönnum kærleika hans og mátt. Efni boðskaparins er hið sama og áður: „Dýrð sé Guði í upphæðum, friður á jörðu og velþóknun yfir mönnunum“. Það berast minni tíðindi en þetta, jafnvel hingað út til íslands. Og þegar þær fregnir komu, var svo mikið af ævintýraþránni eftir í fáeinum af oss, að Tilraunafélagið varð til og ævintýraleitin hafin líka hér úti á íslandi. Oss hafði aldrei gleymzt ævintýrið fegursta. Og þótt trúin á veruleik þess hefði dofnað hjá sumum, þá var það ekki fyrir þá sök, að þeir hinir sömu vildu ekki trúa, langaði ekki af hjarta til að mega trúa — en þeir sáu hvergi slík ævintýr, urðu þeirra aldrei varir, og fyrir því héldu þeir, að þetta væri aðeins fagur skáldskapur; mennirnir hefðu aðeins búið þetta til, til þess að fullnægja ævintýraþránni, eða til þess að reyna að halda lífinu í fegurstu vonum sín- um og sæludraumum.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.