Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 23

Morgunn - 01.12.1954, Page 23
MORGUNN 101 gaman að hitta mömmu eftir einveruna. Hún var þá vana- legast ein komin á fætur, auk piltanna, sem voru komnir út og farnir að slá. Ég man hve kærleikssólskinið var bjart í huga hennar og hve hlýlega hún tók mér. Nú er hún horfin yfir á eilífðarlandið. Og fyrir því rninnist ég á þetta, að þetta eru fyrstu jólin, sem ég lifi eftir heimför hennar. Hún kom fyrst allra inn hjá mér fögnuði jólanna. Hún sagði mér bezt frá fjárhirðunum á Betlehemsvöllum. Hún hlúði bezt að eilífðarþránni í brjósti fliínu. Og eins og ég nú minnist hennar, eins veit ég þið öll minnist einhverra horfinna ástvina, mæðra eða feðra, eða einhverra annarra. Dauðinn ætti að vera afmáður í huga vorum. Vér vit- um, að sú dimma, sem yfir honum hvílir, er ekki annað en lágnættismóða. Og þegar lágnættið er liðið hjá, þá rís sólin af nýju. Þá breytast harmar vorir í gleðitár. Og ég fyrir mitt leyti vona, að ég fái aftur að hitta mömmu og aðra astvini mína og þið ykkar. Og þá munum vér finna til þess, hve kærleikssólskinið er mikið í hugum þeirra. Þá sann- færumst við enn betur um gæzku Guðs og sjáum enn bet- Ur, hve dýrlegt það er að sækja lengra og lengra fram á eilífðarlandið og færast alltaf nær og nær ljósinu, nær og hær Guði. — Með slíka trú í huga getum við sannlega fagn- að ljósanna hátíð og sagt af hjarta hvert við annað: GLEÐILEG JÓL!

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.