Morgunn - 01.12.1954, Síða 38
Svefntal Solveigar.
★
Nýtt Kirkjublað Þórhalls biskups Bjarnarsonar var eitt
langbezta kirkjulegt tímarit, sem gefið hefur verið út á
Islandi. Ritstjórinn var fjölmenntaður maður, víðsýnn og
lét fátt eitt, það er til menningarauka mátti horfa, vera
óviðkomandi blaði sínu. Sem málgagn kirkjunnar varð
Nýtt Kirkjublað, eins og hið eldra Kirkjublað hans hafði
verið, afar vinsælt í höndum hans. Meðal annars birti
N. Kbl. allmargar frásagnir um dulræn efni, og voru ýms-
ar þeirra hinar merkustu.
Nú eru liðnir um það bil fjórir áratugir síðan N. Kbl.
birti þessar sögur og eiga því fæstir menn nú aðgang að
þeim. Þess vegna hefur MORGUNN fengið leyfi til að
birta nokkrar þeirra. Söguna, sem hér fer á eftir, segir
Þórhailur biskup sjálfur. Hún gerðist að nokkuru í æsku-
heimilinu hans í Laufási við Eyjafjörð. Þórhallur biskup
segir þannig frá:
Dálítið efni á ég í dulræna sögu um gáfaða og guðrækna
konu, sem var helming sinnar löngu ævi á heimilum afa
míns og föður, og var þeim mjög kær.
Sjálfur man ég sem ekki eftir henni, man bara hvar
rúmið hennar stóð í gömlu baðstofunni í Laufási. Man það
líklega frá láti hennar. Hún gaf mér tvævetrum fyrstu
bókina, sem ég eignaðist, og var það Viðeyjarbiblían, og eru
á nöfn okkar beggja. Kona þessi hét Solveig Samsonsdóttir.
Ætt Solveigar kann ég ekki. Verð ég hennar fyrst var,
í bókum sem geymzt hafa, fyrir innan tvítugt hjá síra
Ólafi Þorleifssyni á Kvíabekk í Ólafsfirði. Er í húsvitj-
unarbók mikið látið af gáfum hennar og bókvísi. Virðist
hún talin fósturdóttir þeirra hjóna síra Ólafs og Katrínar
dóttur Gunnars prests Hallgrímssonar í Laufási.