Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 45

Morgunn - 01.12.1954, Page 45
MORGUNN 123 útum eftir að þessar kvalafullu pyndingar hófust, fann Morrell, að hann losnaði úr tengslum við jarðneskan lík- ama sinn, hann skynjaði, að hann stóð fyrir utan hann, gat horft á hann, án þess að finna til hins minnsta sárs- auka, og vaknaði með bros á vörum. Á þessum augnablik- um lifði hann og reyndi það, er Jack London nefndi hinn minni dauða. Einu sinni kvaðst hann hafa fundið mjög greinilega, að einhver ósýnilegur máttur hafi haldið spenni- treyjunni í sundur. Hann greindi ekki hinn ægilega þrýst- ing, sem fylgdi samdrætti hennar, gat hreyft handleggi og hendur að vild innan í henni. Einatt kom það fyrir, meðan á pyndingunum stóð, að hann vissi sig dvelja á fjarlægum stöðum, hann ferðaðist um sveitina, athugaði kirkjur og sveitabýli, og stundum saman vissi hann sig vera á gangi um strætin í San Fran- cisco. öðru hverju vissi hann sig staddan á fjarlægum, óbyggðum eyjum, eða á einhverjum stöðum í hitabeltinu, og sá þar svertingja, en á næsta augnabliki brá fyrir hann landslagi og umhverfi, sem líkara var heimahögum hans. Tíðum sá hann viðburði vera að gerast á þeim stöðum, sem hann var staddur á, en síðar var unnt að staðfesta, að þeir höfðu gerzt á sama stað og sömu stundu, er hann vissi sig skynja þá. Frá sálrænu sjónarmiði er það merkilegast og athyglis- verðast við reynslu Ed. Morrell’s, að allt samband hans við umheiminn var rofið. Hann var geymdur í gluggalaus- um kjallaraklefa, og átti ekki kost á að ræða við aðra en hina dýrslegu kvalara sína, og honum var því ekki unnt úð vita um neitt, sem gerðist fyrir utan veggi fangaklefa hans. En eigi að síður voru upplýsingar hans af því, er hann skynjaði, meðan hann dvaldi utan líkamans, réttar °g nákvæmar, eins og auðið var að fá staðfest. Sjálfur var hann sannfærður um, að hann hefði hvað eftir annað yfir- gefið jarðneskan líkama sinn og ferðast um sem frjáls ftiaður í hinum ytra heimi. Og hvernig hefði hann mátt verða alls þessa vísari, ef svo hefði ekki verið? Hvernig

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.