Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 52

Morgunn - 01.12.1954, Page 52
130 MORGUNN rænt nafn á allsherjareyðingunni, eins og nútíma biblíu- rannsóknir hafa leitt í ljós. Það gæti ekki verið í mótsögn við allt, sem biblían segir um ástand framliðinna. En í deilunni um norsku vítiskenninguna var sáralítið minnzt á biblíuna. Jafnvel prestarnir, sem tóku til máls, báru sjaldan fyrir sig Guðs orð. Orðasenna þeirra snérist að mestu leyti um, hvernig bæri að skilja kennisetningar Níkeujátningarinnar og Ágsborgarjátningarinnar. En hvorir tveggja, klerkarnir og mótstöðumenn þeirra, hefðu getað borið mikið úr býtum með því að skoða einfaldlega það, sem biblían segir um deilumál þeirra. Ef þeir hefðu lagt það á sig, hefðu þeir komizt að raun um, að Noregur þurfti ekki að nema helvíti úr lögum, með því að það hefur aldrei verið til, þ. e. a. s. aldrei, nema í ímyndun trúmála- leiðtoga, sem voru á villigötum. J. A. þýddi. ★ Verndareng-ill Sókratesar. ★ í varnarræöunni hefur Xenophon þessi urnmæli eftir Sókratesi: „Ég hef heyrt þessa spádómsrödd alla ævi, og henni er vissulega betur treystandi en þeim spádómum, sem menn eru að reyna að lesa úr flugi fugla og innyflum þeirra. Ég kalla þetta guð eða daimon. Ég hef sagt vinum mínum frá aðvörunum, sem röddin hefur birt mér, og fram til þessa dags hefur röddin aldrei brugðizt mér“. Plató lætur Sókrates segja: „Fyrir guðanna náð hefur hálfguðleg vera fylgt mér frá barnæsku. Oðru hvoru hef ég heyrt rödd hennar. Hún hefur stundum haft mig ofan af því, sem ég ætlaði að gera, en aldrei leiðbeint mér um það, sem ég ætti að gera“.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.