Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Page 55

Morgunn - 01.12.1954, Page 55
MORGUNN 133 inn. Deyjandi vinur minn, sem ég sat hjá, sagði hvað eftir annað, svo að segja milli andvarpanna: ,,Ó, hve ununar- fullt það er, að sjá inn um hliðið“. Og það var eins og hann væri að fara inn til einhvers ósegjanlegs fagnaðar. Hvað eftir annað talaði hann um blóm, sem hann sæi. Systir mín komst í opinn dauðann af lungnabólgu. Hún sagði mér síðar, að hún hefði heyrt, að sér væri ekki hug- að líf. En sér hefði verið ómögulegt að skilja sorg þeirra, sem stóðu við dánarbeðinn, því að sjálf hefði hún verið eins og þrungin ólýsanlegri sælukennd, og undursamleg tónlist hefði hljómað í eyrum sínum. Loks kvaðst hún hafa heyrt einhvern við „dánarbeðinn“ segja: „Henni ætlar að batna“. Og hún sagðist hafa fundið til sárra vonbrigða yfir að vera kölluð frá þessari miklu sælu. Þegar batinn fór að koma, þá fór mér að líða illa, sagði hún. Hún sagði mér, að hún hefði horft á ástvini sína með dapurlegu brosi, eins og til að segja: „Þið getið kallað þetta bata, ef þið viljið, en þetta er raunaleg tilvera hjá tilverunni, sem ég var nærri horfin til“. Ég er auðvitað ekki að fullyrða, að þarna hafi í bókstaflegum skilningi verið um „hlið himnaríkis" að ræða eða raunverulega tónlist, en um áhrif, sem vöktu slíkar skynjanir. Ég skal ekki lengja mál mitt með mörgum slíkum frásögum, en frá tveim atvikum ætla ég enn að segja. Kunnur blaðamaður, hr. W. C. Edgar, reit grein í blaðið Spectator, 11. febr. 1928, og kallaði greinina „Ævintýrið að deyja“. Hann segir frá því, að honum hafi verið ráðið til þess að leggja sig undir vafasaman uppskurð við krabba- meini, þótt hann vissi ekki betur þá en að sér liði ágæt- iega. Hann var hvorki þreyttur á líkama né sál, þegar hann fór á skurðarborðið. Hann var deyfður á nokkurum hluta iíkamans, og þar sem hann lá á skurðarborðinu, sagði hann við sjálfan sig: „Þetta er mjög merkilegur viðburður, og hér ætla ég að hafa stjórnina sjálfur. Nú liggur leið mín niður í hinn nafntogaða „skuggadal dauðans“, og fáir hafa snúið þaðan aftur til að segja sögu sína. Ég hef fulla rænu,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.