Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Side 67

Morgunn - 01.12.1954, Side 67
Frú Jean Thompson, gestur S.R.F.Í. ★ 12. okt. sl. kom til landsins kunnur skozkur miðill, frú Jean Thompson, og starfaði fyrir Sálarrannsóknafélag ís- lands um hálfs mánaðar skeið Eins og lesendum MORGUNS er kunnugt hafði stjórn félagsins náð samningum við frú Helen Hughes, sem nú er einna kunnust allra enskra miðla, og var ætlunin að frúin kæmi til landsins á þessu ári, en veikindi hömluðu henni. Þá var leitað þess að fá annan góðan miðil, og kom forseti S.R.F.Í. við í London á heimleið frá Norðurlöndum í sumar og gerði samninga við frú Jean Thompson, sem þá var stödd í London. Leitað var upplýsinga, einkum hjá London Spiritualist Alliance, sem S.R.F.Í. hefur einkum haft samband við og starfar á líkum leiðum. Var einkum hent á frú Thompson. Sérstaklega vegna þess, að á síðasta ari hafði hún verið gestur spíritistafélaga í Stokkhólmi og Gautaborg, og hafði starf hennar þar tekizt svo vel, að hún var samstundis ráðin til að koma þangað aftur á þessu ári. Stjórn S.R.F.Í. og mörgu félagsfólki hafði lengi leikið hugur á að fá hingað erlendan miðil. Enda má öllum vera l.ióst, að mikil vandhæfni er sannanamiðli á því, að starfa arum saman fyrir sama fólkið í heimahögum sínum Mið- ^llinn fer þá að vita svo mikið um fólkið, sem hann vinnur fyrir, að stórlega fer að skerða sannanagildi þess, sem fram kemur hjá honum, jafnvel þótt starf hans kunni að vera heiðarlegt með öllu og áreiðanlegt. Fólk fer að spyrja: Vissi miðillinn ekki flest þetta, sem af vörum hans var sagt við mig, eða allt? Kemur þetta ekki allt úr vitund hans sjálfs? Má ég reiða mig á þetta? Eftir því sem miðillinn 10

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.