Morgunn


Morgunn - 01.12.1954, Síða 72

Morgunn - 01.12.1954, Síða 72
150 MORGUNN einn mann. En næsta morgun hringdi til mín kona, sem verið hafði á fundinum, og kvaðst eftir á kannast örugg- lega við þennan mann. Fimmta og síðasta fjöldafundinn hélt frú Thompson í Guðspekifélagshúsinu fimmtudaginn 21. okt. Framan af gekk fundurinn vel, en eftir hálfnaðan þann tíma, sem frú- in varði venjulega til frásagna sinna, kvaðst hún verða að hætta, „krafturinn“ hefði skyndilega þrotið, hún næði ekki lengur þeim tökum á því, sem fyrir sig bæri, að hún vildi segja frá því. Ekki er gott að fullyrða, hvað þessu olli. Sennilega tvennt. Bæði það, að fólkið, sem hún var að tala við og lýsa sýnum sínum fyrir, tók afar dræmt undir og svaraði naumast, og einnig hitt, að að morgni þessa dags hafði hún kvartað undan smálasleika, sem þó var ekki al- varlegri en svo, að hún var búin að gefa einkafundi allan daginn með góðum árangri. Á þessum fundi nefndi frúin fornafn og föðurnafn manns nokkurs, sem andaðist voveiflega á liðnu ári, og sagði með hverjum hætti það hafði orðið. Þá lýsti hún ungum flugmanni, sem einnig hafði farizt voveiflega, og sagði nafn hans og kvað hann hafa verið 19 ára. Allt var þetta rétt En ýtarlegasta og skemmtilegasta lýsing fékk kona ein á fundinum. Frúin lýsti systur hennar látinni og sagði nafn hennar og ennfremur nafn konunnar, sem hún var að tala við. Hún sagði, að látna systirin hefði skilið eftir sig á jörðunni skrifuð blöð, sem henni hefði þótt mik- ið vænt um og hefði mikinn áhuga fyrir enn. Og þá bætti hún við: „Systir yðar segist vera viss um, að hún gæti nú notað hönd yðar til að skrifa með (ósjálfrátt)“. Systirin, sem frú Thompson var að segja frá, var frú Sesselja Guð- mundsdóttir, sú sem skrifaði fyrir tuttugu árum hið merki- lega mál ósjálfrátt, sem leiddi til þess að bein Agnesar og Friðriks fundust hjá Vatnsdalshólum. Frú Thompson sagði, að Sesselja talaði um 7 systur sínar. Var það rétt. Hún nefndi Ólaf og Vilmund, sem voru bræður hennar. Að lok- um lýsti hún fyrir konu þessari manni hennar, sagði á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.