Morgunn - 01.12.1954, Page 82
160
MORGUNN
allt annað á fjöldafundunum, óðara og frú Thompson sagði
það. Fleiri ný atriði komu á þessum fjöldafundi til við-
bótar því, sem frú Ingibjörg Ögmundsdóttir fékk á þess-
um ágæta einkafundi.
Ég sé ekki ástæðu til að f jölyrða frekara um þessa fundi,
þótt hér sé ekkert sagt frá því, sem merkast kom fram, en
það voru viðkvæm einkamál fundagestanna. Þótt leitt sé,
verður slíkt vitanlega að liggja í þagnargildi.
Jón Auðuns.
★
Fritz Griinewald,
þýzkur verkfræðingur, var frumkvöðull þess að nota vísindalegar
tækniaðferðir við rannsóknir á líkamlegum miðlafyrirbærum. Rann-
sóknastofa hans, sem búin var hinum fullkomnustu tækjum, varð
fyrirmynd annarra sálrænna vísindastofnana i París, London,
Berlín og Vínarborg. Griinewald rannsakaði nokkra kunna líkamn-
ingamiðla, meðal þeirra Einer Nielsen. Auk þess rannsakaði hann
reimleikafyrirbærin, sem gerðust í sambandi við rúmensku telpuna,
Eleonore Zugun. Hann andaðist árið 1925.