Morgunn


Morgunn - 01.06.1965, Page 7

Morgunn - 01.06.1965, Page 7
Vorið kemur ☆ Vonagjafinn öllum ertu — ennþá grær og loftin hlýna. Kom þú blessað, vor, og vertu velkomið í sálu mína. Engin þjóð í víðri veröld hefur þráð vorið lengur og heitar en við íslendingar. Það hlaut svo að verða. Vetrarmyrkrið og einangrunin verður þeim þungbært og dapurt, sem ljós- inu unna og þrá fegurð lífs og fylling. Og við höfum svo oft orðið að bíða, biða svo óralengi eftir vorkomunni. „Það sumrar svo seint á stundum, þótt sólin hækki sinn gang“. Islenzka vorið kemur ekki sunnan yfir höfin, samkvæmt áætlun, eins og flugvélarnar okkar eða skipin. Komu þess seinkar oft úr hófi fram — en það kemur að lokum og oft því yndislegra, blíðara og betra, sem við höfum beðið þess lengur, alveg eins og það vilji bæta fyrir það, hve lengi það hefur tafizt á leiðinni til okkar. Við höfum löngum verið vorinu háð og harla bundin, átt undir því að verulegu leyti, ekki aðeins afkomu okkar og hag, heldur beinlínis líf okkar. Margur bóndinn hefur beðið vorsins í ofvæni þess, sem veit, að allt er í veði, lif bústofns- ins í bjargarleysinu, afkoma og framtíð hans sjálfs, konu hans og barna. Er það furða, þótt heitt hafi verið beðið og hjartað þráð komu vorsins? Nú erum við að visu ekki jafn óskaplega háð vorinu og áður var, og þó er i raun og veru enn allt undir því komið, þrátt fyrir aukna tækni og velmegun. Við kunnum að geta beðið þess ofurlítið lengur nú, en án þess getum við ekki iifað. Svo nátengt er það enn, bæði þjóð og þjóðlífi. Sennilega er það svo, að það er maðurinn einn, sem fylli- 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.