Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 14
8
MORGUNN
en þeim vélum, sem mennirnir smíða, og ætlað er að vinna
fjölbreytt störf. Munurinn er þessi, að í verksmiðjunni er það
sýnileg og áþreifanleg mannshöndin, sem starfi vélarinnar
stýrir, en líkamanum stjómar við dagleg störf hinn ósýni-
legi hugur eða persónuleiki mannsins. Efnishyggjumaður-
inn hefur haldið því fram, að þessi stjórnandi sé heilinn,
hann framleiði hugsun og vit, og frá honum og til hans liggi
þeir þræðir, sem stjóma öllum hræringum líkamans. Þetta
er álíka gáfulegt og að segja að stjómklefinn stýri skipinu
eða mælaborðið bílnum. Og þarf ekki að ræða það frekar.
Auðvitað er það ósýnilegur andi mannsins, sem stjórnar öll-
um vélum og þar með einnig líkamsvélinni. En fullkomin vél
er yfirleitt þannig gerð, að starfi hennar er unnt að stýra frá
einni miðstöð, vélskipinu frá stjómklefanum, líkamanum frá
heilanum.
Nú er það svo, að skipstjórinn er engan veginn rígfjötr-
aður við stjórnklefann. Hann getur verið til viðtals í landi,
og er það oft. Og þetta sýnir okkur, að skipstjórinn og skipið,
sem hann stjórnar, eru sitt hvað. Hann getur meira að segja
verið við beztu heilsu eftir að skip hans hefur farizt eða því
hefur verið lagt við festar, sem ónýtu.
Svipað er þessu farið um samskipti sálarinnar og líkam-
ans. Líkamsvélin getur verið í gangi og er það oftsinnis, án
þess að andi mannsins eða sál sé þar stöðugt að verki. Svo
er og um vélar skipsins, að þær halda áfram starfi sínu, þótt
skipstjórinn víki frá um stund. En þegar orku líkamans er
beint að einhverjum ákveðnum verkefnum, meira eða minna
vandasömum og fjölbreyttum, verður hinn ósýnilegi stjórn-
andi, sálin, að koma til skjalanna, alveg á sama hátt og skip-
stjórinn þarf að leggja hönd að stýri, ef breyta á stefnu
skipsins. 1 svefni virðist sálin sleppa að verulegu leyti stjórn
sinni á líkamanum, fara jafnvel úr honum um stundarsakir,
eða hún setur sig þá með einhverjum hætti í beint samband
við aðrar sálir. Menn koma á stundum margvíslegum boðum
sín á milli um óravegu, að því er virðist gjörsamlega óháð
líkamsvélinni. Þessi samskipti, fjarhrifin (telepathy) eru nú