Morgunn - 01.06.1965, Blaðsíða 50
44
MORGUNN
til vill að kollvarpa að verulegu leyti þeim hugmyndum, sem
menn nú hafa bæði um rúm og tíma.
Stundum virðist þessi vitneskja um framtíðina aðeins ná
til þess, að bent er á ákveðinn tíma, dag eða stund, sem ein-
hver ákveðinn maður eða f jölskylda skuli sérstaklega minn-
ast og hafa í huga vegna þess að þá muni eitthvað það ger-
ast, sem þau snerti sérstaklega, án þess að uppi sé látið, hvað
það muni verða.
Nýlega frétti ég lauslega af einu dæmi þessarar tegundar
í sambandi við miðilsfund hjá Hafsteini Björnssyni á síðast-
liðnu sumri. Maður að nafni Konráð Adolphsson, sem bú-
settur er í Bandaríkjunum, var þá hér á ferð og sat þennan
fund hjá miðlinum. Ég skrifaði honum og bað hann að segja
mér sem Ijósast af því, sem á fundinum gerðist og því, sem
síðar kom fram í sambandi við það, sem þar var sagt. Hann
varð vel við þessum tilmælum og hefur góðfúslega leyft mér
að birta svarið, sem hann sendi mér.
Bréf hans er á þessa leið:
Salisbury, 28. marz 1965.
Séra Sveinn Víkingur.
Ég hef móttekið bréf yðar, og er mér Ijúft að skýra frá
fundi, er ég sat með Hafsteini Björnssyni miðli í byrjun
júní 1964.
Ásamt mér sátu fundinn móðir min, frú Guðrún Elísdótt-
ir, tengdamóðir mín frú Margrét Gunnarsdóttir, og tvær
aðrar konur, sem ég þekkti ekki. Miðlinum til aðstoðar var
maður og kona, sem ég þekki ekki heldur.
Fljótlega beindist fundurinn að mér og voru gefnar grein-
argóðar lýsingar á húsi því, er ég bý í hér, garðinum lýst og
talað um mikla hundgá í kring um húsið. Nú vill svo til, að
við eigum engan hund, en iðulega bíða 2—3 hundar á morgn-
ana fyrir utan bakdyrnar hjá okkur í von um bita. Starfi
mínu var lýst í stórum dráttum og greinargóð lýsing gefin
af eldra manni, er ég hafði aðstoðað tveimur dögum áður en
ég fór til Islands. 1 sambandi við ferð mína á flugvöllinn var
því lýst og glöggt tekið fram, hvar ég hefði komið við.