Morgunn - 01.06.1965, Qupperneq 68
Iíarl V. GuSbrandsson:
Nokkrir þættir úr reynslu minni.
☆
Karl V. Guðbrandsson sjómaður, sem nú er búsettur að
Álfaskeiði 4 í Hafnarfirði, hefur góðfúslega leyft mér að
birta í Morgni eftirfarandi frásagnir varðandi drauma sína
og dularreynslu. Eru þær teknar úr handriti, sem hann hefur
sjálfur skráð og lánað mér, en orðalagi hef ég á stöku stað
lítilsháttar breytt án þess að efnið haggist. Síðasti draumur-
inn er skráður eftir munnlegri frásögn hans. Við frásögnina
um drauma hans um það er vélbáturinn ,,Bára“ strandaði
við öndverðarnes, hef ég bætt meginatriðum úr grein í dag-
blaðinu Vísi hinn 18. nóvember 1964, þar sem birtar eru
fyrstu fréttir af strandinu, sem átti sér stað þá um morgun-
inn. Ennfremur birti ég upphafskafla fréttar Morgunblaðs-
ins um strandið frá 19. nóvember.
Drauma hans tvo varðandi Báruna og strand hennar tel
ég sérstaklega eftirtektarverða fyrir margra hluta sakir.
Fyrri drauminn kveður hann sig hafa dreymt um kl 6 að
morgni, eða nær V/> klukkustund áður en strandið varð. Þar
finnst honum hann vera kominn til Svíþjóðar og taka þátt í
því, sem þar gerðist fyrir 21 ári, er báti þessum var þar
hleypt af stokkunum árið 1943, og lagði af stað heim til Is-
lands. Sú skýring virðist liggja beinast við, að draumur þessi
eigi rót að rekja til einhverrar forvitundar eða hugboðs um
það, sem naumast gat þá verið á vitund nokkurs lifandi
manns, að báti þessum mundi hlekkjast á eftir rúma klukku-
stund.
Síðari drauminn virðist Karl hafa dreymt um það bil 25
mínútum eftir strandið. Þó sér hann ekki beinlínis það, sem
þá er að gerast. Báðum dagblöðunum ber saman um, að