Frjáls verslun - 01.01.2004, Blaðsíða 35
kaupin á Flugleiðum
að vakti töluverða athygli á dögunum þegar
Eignarhaldsfélagið Oddaflug ehf. keypti
38,48% hlut í Flugleiðum. Þetta eignarhalds-
félag er í eigu Fjárfestingafélagsins Primusar ehf.
sem aftur er í eigu Straumborgar, eignarhalds-
félags Jóns Helga Guðmxmdssonar, sem kenndin-
er við Byko, og Hannesar Þórs Smárasonar,
aðstoðarforstjóra Islenskrar erfðagreiningar og
tengdasonar Jóns Helga.
Með þessum kaupum hafði Hannes stimplað sig
rækilega inn í íslenskt viðskiptalíf. Nafn hans mun
væntanlega heyrast æ oftar í fréttum á næstu misser-
um og um leið munu flestir landsmanna kinka kunn-
uglega kolli þegar þeir heyra minnst á Hannes. Kann
að vera að þessi athygli falli ekki beint í kramið hjá hin-
um 37 ára gamla athaihamanni, en hann mun frekar
lítt gefinn fyrir athygli ljölmiðla. En leiðandi starf í einu
þekktasta og um skeið umdeildasta fyrirtæki landsins,
íslenskri erfðagreiningu, stigvaxandi umsvif í
íslensku viðskiptalifi í félagi við tengdaföður sinn og
aðild að nærri helmingseign í Flugleiðum og væntan-
leg stjórnarformennska þar á bæ felur í sér, eðli máls
samkvæmt, að Hannes kemst í fréttirnar. En hver er
hann, þessi Hannes?
Strax Utan til náms Hannes varð stúdent úr Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1987, hlaut ágætiseinkunn
eða yfir 9. Hann var ekki að velta mikið vöngum yfir
framtíðaráformum eins og títt er með ungt fólk á þess-
um tímamótum. Hann hafði ákveðið sig og hélt vestur
um haf þar sem beið hans nám í verkfræði og viðskipta-
fræði við hinn heimsþekkta MIT-háskóla í Massachu-
setts í Bandaríkjunum. Námið gekk vel enda er Hann-
esi lýst sem bráðgreindum manni sem vill að auki að
hlutirnir gangi hratt og greiðlega fyrir sig. Eftir að hafa
lokið prófi í verkfræði og MBA-námi í viðskiptum 1992
hóf hann störf sem ráðgjafi hjá fyrirtækinu McKinsey
& Co. í Boston. Þar starfaði hann í fjögur ár eða þar til
hann ákvað að halda heim og taka spennandi starfstil-
boði hjá íslenskri erfðagreiningu. Hannes hefur því
starfað hjá fyrirtækinu frá upphafi, fyrst sem fjármála-
stjóri og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs og
síðan sem aðstoðarforstjóri, eða frá því í mars 1999.
Ávallt á tánum Viðmælendum Fijálsrar verslunar
ber saman um að Hannes sé bráðgáfaður og snar í
snúningum þannig að samverkamenn hans mega
stundum hafa sig alla við ætli þeir að fylgjast með. Haft
er eftir Páli Magnússyni í Fréttablaðinu að hann sé
„skemmtilegur og klár strákur, dálítið kvikur og ör, lifir
hratt“. Því var bætt við að stundum vissu hvorki
samverkamenn hans né hann sjálfur hvort hann væri
að koma eða fara.
Þeir sem Fijáls verslun ræddi við og þekkja til
Hannesar samþykkja flestir þessa lýsingu. Iðunn Jóns-
dóttir, mágkona Hannesar, sagði engan velkjast í vafa
um hæfileika Hannesar í viðsldptum: „Hann er mjög
áræðinn og mikill keppnismaður. Hann verður þó ekki
kenndur við fífldirfsku því allar ákvarðanir hans eru vel
ígrundaðar. En Hannes er alltaf á tánum og ávaflt við-
búinn. Það er eitthvað sem íslenska handboltalands-
liðið hefði mátt tileinka sér á EM í Slóveníu."
íþrÓHamaður Tilvísun í íþróttir er fráleitt ijar-
stæðukennd því Hannes er mikill áhugamaður um
íþróttir. Hann æfði fótbolta með Fram þegar hann var
yngri og hefði, að sögn kunnugra, hæglega komist í lið
í meistaraflokki. En hann fór vestur til náms áður en af
því varð. Hannes mun þó enn þera sterkar taugar til
síns gamla félags. Hannes fékk þó útrás í fótboltanum
vestra, spilaði með skólaliði MIT í fótbolta og skoraði
þar ófá mörkin. Þá hittust íslendingar í Boston gjarnan
á laugardögum og spiluðu stundum fótbolta. I þeim
hópi voru menn eins og Hreggviður Jónsson, forstjóri
PharmaNor. Þeir Hannes kynntust vel ytra og er vel til
vina afla tíð síðan. í hópi íslendinga í Boston á þessum
tíma var einnig að finna Steingrím Pál Kárason sem í
dag sér um áhættustýringu og útlánaeftirlit hjá KB-
banka.
Hannes er hlaupagikkur, hefur tekið þátt í tjölda
hlaupa hérlendis og erlendis. Hann er einnig iðinn í lík-
amsrækt og spilar stundum tennis með Steinunni, kon-
unni sinni, en hún hampaði einu sinni sigri í hálfmara-
þoni í Reykjavík. Og hann hefur gaman af þeirri ögrun
sem felst í nýjum íþróttagreinum, jafnvel jaðaríþrótt-
um. „Hann er svolítill adrenalínfíkill, vill fá kikk út úr
því sem hann fæst við hveiju sinni.“ Það þarf engan að
undra þó Hannes fái ekki mikinn tíma til tómstunda en
hann fer þó í stöku veiðitúr og les reiðinnar býsn.
Á ferð 09 flugi Hannes er fæddur 25. nóvember 1967.
Hann er sonur hjónanna Smára Sigurðssonar rekstrar-
tæknifræðings og Nönnu Sigurðardóttur. Faðir hans
starfar sem ijármála- og gæðastjóri hjá Iðntækni-
35