Frjáls verslun - 01.01.2004, Síða 53
Noregur Samkvæmt norskum lögum um eignarhald á fjöl-
miðlum ber sérstakri stofnun að koma í veg fyrir
og stöðva viðskipti með flölmiðlafyrirtæki ef lík-
legt þykir að eignasamþjöppunin verði of mikil.
Lögin heimila einnig afskipti af einstaklingi eða fyrirtæki sem
hefur náð þriðjungi af tilteknum markaði, t.d. á sviði blaðaút-
gáfu og sjónvarps, á landsvísu. Ekki er kveðið á um fjölmiðil
sem eykur hlutdeild sína á eigin spýtur, þ.e.a.s. án þess að
kaupa upp eða sameinast öðrum tjölmiðli. Engin ákvæði eru
um þvereign í Noregi en talið er hugsanlegt að eignarhalds-
þröskuldurinn verði lækkaður þegar sami eigandi hefur yfirráð
yfir mismunandi flölmiðlum á landsvísu.
Svíþjóð Engar reglur né lög eru um eignarhald á blöðum og
blaðaútgefendum í Svíþjóð, ekki er beint bannað
að reka útvarp eða sjónvarp. Fremur ólíklegt
þykir að stór blaðaútgefandi fái leyfi til rekstrar á
útvarps- eða sjónvarpsstöð. Ekkert eftirlit er með því hveijir
eiga flölmiðla.
Danmörk Almennar samkeppnisreglur gilda í Danmörku, að
öðru leyti eru ekki neinar sérstakar reglur í gildi
um eignarhald á flölmiðlum, hvað þá að í gildi
séu þvereignarreglur. Blaðaeigendur mega reka
sjónvarp og útvarp en öðrum fyrirtækjum er óheimilt að eiga
hlut í ljósvakamiðlum. Þeim sem hefur ljósvakaleyfi er óheimilt
að stunda annan rekstur. Ekki er fylgst með því hveijir eru eig-
endur ijölmiðla.
Bandaríkin
í Bandaríkjunum eru hvorki lög um eignarhald á
útgáfufyrirtækjum né skráningu hlutaflár. Ekki
eru heldur nein lög í gildi sem takmarka eignar-
— hald erlendra fjárfesta á innlendum dagblöðum.
Það eru hins vegar lög um þverreglur og lög sem meina blaða-
útgefendum að reka útvarps- og sjónvarpsstöðvar á sama svæði.
Hvað gegnsæi eignarhalds varðar þá eru Bandaríkjamenn ekki
með nein slík lög. Þeir eru hinsvegar með lög gegn sam-
þjöppun eignarhalds í dagblöðum.
Frakkland Reglur um eignarhald á útgáfufyrirtækjum tak-
marka samþjöppun. í gildi eru lög sem takmarka
eignarhald erlendra fyrirtækja og einstaklinga,
sérstaklega meirihlutaeign, á dagblöðum, lög
sem meina blaðaútgefendum að reka útvarps- eða sjónvarps-
stöðvar á sama svæði, lög um gagnsæi eignarhalds og lög gegn
samþjöppun eignarhalds á dagblöðum.
Þýskaland í Þýskalandi eru í samkeppnislögum sérstakar
reglur um eignarhald á ijölmiðlum. Samkvæmt
þeim geta yfirvöld gripið inn í samruna fjölmiðla-
fyrirtækja. Einn aðili má ekki ráða meira en þriðj-
ungi markaðarins hvað útbreiðslu varðar. Ef hann er í markaðs-
ráðandi stöðu á öðrum sviðum markaðarins gildir 25% þak.
Spánn Engin lög eru um eignarhald á fjöl-
miðlum. Takmarkað er hversu mörg útvarpsleyfi
einn og sami aðili má eiga.
Finnland Engar reglur gilda um blaðaeign í Finnlandi. Við út-
hlutun ljósvakaleyfa er unnið gegn eignasam-
þjöppun sem talið er að geti ógnað tjáningar-
frelsi. Ef nýir aðilar eignast fyrirtæki með ljós-
vakaleyfi fellur leyfið úr gildi. Stjórnvöld eru treg til að veita
blaðaeigendum ljósvakaleyfi. Ótvíræðar þvereignarreglur eru
engar. Ekki er fylgst með því hveijir eiga ijölmiðla.
Bretland Ný boðskiptalög auka fijálsræðið hvað varðar
eignarhald og starfsemi fjölmiðla í Bretlandi.
■■■■■■ Opinber stjórnvaldsstofnun hefur verið sett á
laggirnEir og hefur markaðshlutdeildin, sem
áður var miðuð við 15 prósent, verið athumin fyrir útvarp og
sjónvarp. Þvereignarreglur hafa verið mildaðar. Afnumið bann
um að sami aðili hafi bæði sjónvarpsleyfin í London. Reglur sett-
ar til að tryggja fjölbreytni í íjölmiðlum.
Ítalía Á Ítalíu eru í gildi lög um eignarhald á útgáfufyrir-
tækjum eða skráningu hlutatjár í blaðaútgáfum.
Eftirlitsstofnun með Jjölmiðlum er í samstarfi við
samkeppnisyfirvöld þegar Jjölmiðlafyrirtæki
sameinast. Enginn má ráða meira en 30 prósentum af sjón-
varpsmarkaði. Eignatengsl milli prentmiðla og ljósvakamiðla
eru takmörkuð. Þrátt fyrir allt þetta hefur forsætisráðherrann,
Silvio Berlusconi, afar sérstaka stöðu. Hann á sjónvarpsstöðvar
sem hafa 45% áhorf og 60% af auglýsingum í sjónvarpi.
Ástralía í Ástralíu má aðeins reka eina tegund fjölnfiðils á
hveiju markaðssvæði og því getur sami aðili
ekki gefið út dagblöð og rekið sjónvarps- og
eða útvarpsstöð á sama markaðssvæði. Þátt-
taka erlendra Jjárfesta í áströlskum Jjölmiðlum verður að vera
undir helmings eignarhlut. 55
53