Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 57

Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 57
fyrstu viðskiptalögfræðingarnir útskrifast frá Bifröst. Áður en ákveðið var að bjóða upp á námið voru kannaðar þarfir atvinnulifsins fyrir fólk með slíka menntun. „Það var samdóma álit þeirra sem við leituðum til að atvinnulífið hefði þörf fyrir fólk með þessa menntun,“ segir Ingibjörg Þorsteinsdóttir, for- seti lögfræðideildar. Hún segir að leitað hafi verið m.a. til Dan- merkur og Þýskalands að fyrirmynd að náminu. I þessum löndum hefur viðskiptalögfræðingum verið gríðarlega vel tek- ið af atvinnulífinu. „Við erum spennt að sjá hvernig íslenskt at- vinnulff tekur okkar nemendum. Vissulega fara mörg þeirra sem nú útskrifast með BS-gráðu beint í framhaldsnám á með- an önnur fara út á vinnumarkaðinn," segir Ingibjörg. Ingibjörg segir að viðskiptalögfræði sameini kosti tveggja ólíkra sérfræðinga; lögfræðinga og viðskiptafræðinga. „Mark- miðið er að mennta fólk með hagnýta þekkingu sem nýtist við- skiptalífinu. Fæst verkefni í fyrirtækjum eru af hreinum lög- fræðilegum eða viðskiptafræðilegum toga. Sérstaða námsins felst fyrst og fremst í því að samþætta þessar tvær fræðigrein- ar. Reynsla erlendis sýnir að viðskiptalögfræðingar vinna gjarnan hjá ráðgjafafyrirtækjum, einkum á sviði rekstrar- og skattamála, lögfræðifyrirtækjum og gármálafyrirtækjum. Þeir ættu einnig að geta nýst vel hjá hinu opinbera, hvort heldur sem er hjá ríki eða sveitarfélögum. Reynslan sýnir ennfremur að eftirspurn eftir þessari menntun hefur jafnan verið langt umfram væntingar." Hvað geta viðskiptalögfræðingar? Danskir viðskiptalögfræðingar segja gjarnan: „Vi kan noget andre ikke kan“ (við getum ýmislegt sem aðrir geta ekki) og vísa þar til þeirrar sérstöðu sem blandað nám 1 lögfræði og viðskiptafræði hefur. Námið er sniðið að þörfum atvinnulífsins og markmið þess er að veita hagnýtan og fræðilegan undir- búning að fjölbreyttum sérfræðings- og stjórn- unarstörfum. Haldgóð þekking á samningarétti, vinnu- rétti og kröfurétti eru dæmi um þá færni sem viðskiptalög- fræðingar hafa að námi loknu. Með því að koma að samninga- gerð við kröfuhafa, viðskiptavini eða starfsmenn á fyrstu stigum máls geta þeir stuðlað að öruggari samningagerð sem kemur í veg fyrir tímafrekar og kostnaðarsamar deilur á síðari stigum. Viðskiptalögfræðingur hefur ennfremur undirstöðu- þekkingu á lagalegum áhrifum ábyrgða og veðsetninga og getur lagt mat á skuldbindingar fyrirtækis á því sviði. Viðskiptalögfræðingi er einnig ætlað að vera í stakk búinn til að taka þátt í ákvörðunum á sviði stefnumótunar og markaðsmála þar sem hann hefur lokið grunnnámi í greinum á sviði stjórnunar, stefnumótunar og markaðsmála. Loks má nefna að viðskiptalögfræðingar geta, á grundvelli þekkingar sinnar í skattarétti og skattskilum fyrirtækja, tekist á við fjölbreytt verkefni á sviði skattamála. Þessi þekking ætti að nýtast þeim vel í störfum innan flestra fyrirtækja en ekki síst í störfum hjá fyrirtækjum sem veita ráðgjöf á þessu sviði og innan stofnana skattkerfisins. „Skólinn er sjálfseignarstofnun með takmarkaðan fjölda nemenda. Það veitir okkur aukinn sveigjanleika til að takast á við breytingar í alþjóðlegu samfélagi," segir Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnastjóri rannsókna og upplýsingamála. Framtíðin Sérstaða Bifrastar felst ekki síst í háskólaþorpinu sem orðið hefur til í kringum skólann. Þar búa og starfa tæplega 600 manns og þar er allt til alls, s.s. verslun, bókabúð, kaffihús, bar, líkamsræktaraðstaða, heitir pottar, gufa, þvottahús, leikskóli og grunnskóli. Uppbyggingin á Bifröst hefur verið ævintýri líkust. I dag telur skólinn 355 nemendur og í háskólaþorpinu búa um 550 manns. Bifröst er lítill háskóli og það stendur ekki til að breyta því. Hólmfríður segir að skólinn hafi náð því marki sem sett var varðandi fjölda nemenda í grunnháskólanáminu. „Nú leggjum við áherslu á að byggja upp meistaranámið og rannsóknir hérna við skólann." Hver sá sem keyrir um Norðurárdalinn kemst ekki hjá því að taka eftir þeirri miklu uppbyggingu á húsnæði sem orðið hefur á Bifröst. Þar hafa bæði risið skólabyggingar sem og nemenda- og starfsmannaíbúðir. „Við erum nú að hefja byggingu á enn einu húsinu þar sem verða mun rannsóknasetur og nemendagarðar. Við lítum á það sem lokaáfanga í þessari hröðu uppbyggingu húsnæðis í háskólaþorpinu.“ BH VIÐSKIPTAHASKOLINN BIFRÖST 311 Borgarnesi • sími 433 3000 bifrost@bifrost.is • uuuuuu.bifrost.is KYNNING 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.