Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2004, Side 64

Frjáls verslun - 01.01.2004, Side 64
Heimasíðurnar Heimasíða lceland Express þykir koma uel út í samanburði uið heimasíðu lcelandair, mun ein- faldara þykir að bóka hjá lceland Express en hjá lcelandair. Iceland Express sé að gera skemmti- lega hluti á sinni síðu, t.d. með þuí að bjóða upp á hús til leigu á Ítalíu. skemmt fyrir. Réttara sé að einbeita sér að rekstrinum, byggja hann upp og bjóða gott verð og góða þjónustu og gera það með jákvæðum hætti. Þegar orkan fari í að skamma keppinautinn og tjá sig um afkomu hans í stað þess að berja sér á brjóst, fari menn að velta fyrir sér hvernig staðan sé í raun. Engin ástaeða að sitja þegjandi óiafur er ósammáia þessu og telur Iceland Express einungis hafa gagnrýnt Icelandair fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. „Við höfum aldrei tjáð okkur um þjónustu þeirra, bara bent á að afkoma þeirra sýnir svart á hvítu hvað þeir þurfa að fórna miklum tekjum í samkeppninni við okkur. Ef þeir hefðu getað haldið áfram með vorsmellina þá hefði þeim verið í lófa lagið að keyra okkur í kaf en þeim var bannað að selja miðana svo áberandi langt undir kostnaðarverði. Það er engin ástæða fyrir okkur að sitja þegjandi og hafa áhyggjur af því að þessi gagnrýni sé neikvæð fyrir okkur hvað almannatengslin varðar. Það er enginn annar sem bendir á það hvernig þeir misnota sína markaðsráðandi stöðu,“ segir hann. Margir telja að rekstrarkostnaður Iceland Express sé of mikill og yfirbyggingin sömuleiðis en því eru forráðamenn félagsins ekki sammála. Um 48 manns starfa hjá þessu félagi og verða 65 talsins þegar báðar vélarnar eru komnar í notkun. Að margra mati ætti félagið að hafa færri starfsmenn, en Ólafur telur tal um yfirbyggingu út i hött, fáliðun sé nær lagi því að félagið sé með 4.800 farþega á hvern starfsmann á árs- grundvelli. Hjá Icelandair sé sambærileg tala um 900 farþegar. Harkan sex Viðbrögð Icelandair við samkeppninni hafa ekki komið á óvart enda vita menn þar á bæ að það er harkan sex sem gildir í fluginu. Margir telja að Icelandair finni veru- lega fyrir samkeppninni frá Iceland Express og telja sumir að stjórnendum Icelandair hafi verið brugðið vegna þess hve vel hafi gengið hjá þessu nýja flugfélagi en nú séu þær raddir háværar hjá Icelandair að rekstur Iceland Express gangi ekki upp á endanum. Ymsir telja að félagið hafi ekki beitt sér af neinum alvörukrafti gegn Iceland Express, félaginu hefði verið í lófa lagið að bregðast við og jafnvel koma í veg fyrir að Iceland Express kæmist í loftið í fyrra, t.d. með því að stofna sjálft lágfargjaldaflugfélag. I samtölum við ýmsa heimildarmenn kom fram sú kenning að stjórnendur Icelandair hefðu talið sjálfum sér svo rækilega trú um að lítil hætta stafaði af Iceland Express að hugsanlegt sé að þeir sofni á verð- inum. Varla þarf að taka fram að sjálfir eru stjórnendur Icelandair engan veginn sammála þessu. Þegar rætt er við stjórnendur Icelandair leggja þeir áherslu á að félagið sé í samkeppni á mjög stóru sviði, ekki megi til dæmis gleyma leiguflugi ferðaskrifstof- anna til sólarlanda. Samkeppni til London og Kaupmannahafnar sé af hinu góða en það sé aðeins brot af markaðnum og það sé mesti misskilningur að Iceland Express hafi sett allt á annan endann með innkomu sinni á markaðinn. Icelandair hafi verið búið að lækka verðið áður en Iceland Express kom til. ,Auðvitað höfum við brugðist við keppinautum okkar eftír að þeir komu inn á markaðinn en aðdragandinn er ekki nýr. Við erum lifandi þátttakendur í þessu umhverfi og vitum hvað er að gerast í heiminum. Fyrir þremur árum fengum við fyrst smjör- þefinn þegar Go kom hingað. Þá vissum við til hvaða veislu okkur var boðið,“ segja þeir og bæta við að Icelandair hafi unnið markvisst að því eftir 11. september 2001 að lækka kostnað til að mæta samkeppni við lággjaldaflugfélög. Um það beri glöggt vitni árið 2002 sem hafi verið arðbærasta ár félagsins. ímyndin „betta dýra, fína félag“ Icelandair telur að með tilkomu lággjaldaflugfélaga felist tækifæri, ekki bara ógnanir. Félagið hafi látíð gera vikulegar markaðsrannsóknir síðustu misseri og komist að raun um að það hafi ekki náð nógu vel til ungs fólks og Islendinga sem búsettir séu erlendis þrátt fýrir að vera samkeppnisfært í verði. Félagið hafi þurft að vinna í ímynd sinni. „Imynd Iceland Express var sú að þeir væru miklu lægri í verði og þess vegna fóru viðskiptavinir inn á vefinn hjá þeim og keyptu miða án þess að kanna hvaða verð þeir hefðu getað fengið hjá okkur. Þetta fólk taldi sig vera að gera góð kaup þrátt fyrir að við værum kannski að bjóða jafn vel eða betur. Okkar ímynd var sú að við værum þetta dýra, fína, góða flugfélag sem veitti fulla þjónustu og hlyti því að kosta meira,“ segja þeir. Til að ná til unga fólksins og Islendinga erlendis í auknum mæli ákvað Icelandair að fara út í óhefðbundnar auglýsingar, t.d. með því að tengjast tónleikahaldi, brosköllum með sjóræningjalepp, auglýsingum með áherslu á verðið en ekki nafni fyrirtækisins og leiknum auglýsingum sem nokkuð hefur borið á að undanförnu. „Við erum ekki þetta stóra, þunga og íhaldssama bákn sem hlýtur að vera dýrt heldur erum við i takt við unga fólkið," segja þeir. B3 64
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.