Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 92
101 hótel:
FUNDIR OG RAÐSTEFIXIUR
Fyrir fólk sem gerir kröfur
101 hótel er meðlimur í hinni alþjóðlegu
Design hótelkeðju. Hótelið er í anda
Boutique hótela, hótela sem eru
hönnuð með ákveðinn persónuleika í huga
og bjóða gestum sínum upp á fallegt og
glæsilegt umhverfi og sérstöðu á ýmsum
sviðum. Slík hótel sem finnast viða um heim
og þeir sem ferðast mikið leita gjarnan eftir þeim þegar verið
er að skipuleggja gistingu.
„Hér er mjög gott andrúmsloft og fegurðin í hönnun
hótelsins gerir að verkum að gestir og starfsmenn njóta verunn-
ar mjög,“ segir Kolbrún Hrund Víðisdóttir, framkvæmdastjóri
101 hótels sem er í miðri menningarflóru miðbæjar Reykja-
víkur þar sem Operan er í næsta húsi og Þjóðleikhúsið handan
við götuna. „Hér verður til skapandi hugsun og andinn lyftist í
hæstu hæðir hjá þeim sem þannig eru þenkjandi en aðrir finna
fyrir þvi hve umhverfið er slakandi og þægilegt og býður upp á
að njóta augnabliksins á sem bestan hátt“
101 hótel er einstaklega
fallega og smekklega
hannad af eiganda þess,
Ingibjörgu S. Pálmadóttur.
ÞRÍSKIPT HÓTEL Kolbrún segir hótelið í raun þrískipt; það
skiptist í veitingasal með setustofu, fundaraðstöðu og gisti-
aðstöðu. „Ætlun okkar er að bjóða góða og þægilega gisti-
aðstöðu með iýrsta flokks þjónustu," segir hún. „Öll herbergin
eru rúmgóð og þægileg og vilji fólk halda sér í formi eða slaka
á eftir erilsaman dag, getur það notað sér æfingaaðstöðuna
sem hér er eða lagst í nuddpottinn eða farið í gufubaðið.
Háhraða, þráðlaus nettenging er í hótelinu
öllu þar sem hér gistir mikið af fólki úr við-
skiptalífinu sem þarf að geta verið í sambandi
við umheiminn án truflana.
Þessi aðstaða höfðar til fólks sem ferðast
mikið, hvort sem það ervegna vinnunnar eða
af persónulegum ástæðum og gerir kröfur til
persónulegrar og vandaðrar þjónustu. Það eru þó ekki aðeins
þeir sem gista á hótelinu sem geta notað sér nettenginguna
því kaffi- og matargestir geta keypt aðgang að netinu og
komið með fartölvuna."
LfEITfIMGASTAÐUR MEÐ MARGUÍSLEGUM ÁHRIFUM Áveit
ingastaðnum er hægt að fá mat og drykki við allra hæfi.
Mörgum þykir gott að setjast inn á hótel og fá sér mat eða
drykk, enda oft önnur stemming þar en á hefðbundnum veit-
ingastöðum. Boðið er upp á úrval rétta, allt frá skemmtilegum
smáréttum fullkominna veislumáltíða ásamt vönduðu úrvali
léttvína og annarra drykkja. Matarstíllinn er með evrópskum
einkennum með áhrifúm frá Asíu. Fyrir gesti og gangandi er
veitingasalurinn opinn til kl. 11 en barinn til kl. 12 og klukku-
stundu lengur um helgar.
„Setustofan er tengd veitingasalnum og þar er hægt að
setjast niður og fá sér drykk eða kaffibolla og súkkulaðiköku-
sneið af bestu gerð. Fjöldi tímarita liggur frammi tyrir gesti
sem þykir þægilegt að geta gluggað í blöð með kaffinu og
einnig er skemmtilegt bókasafn
þar sem skoða má úrval listabóka
og annarra bóka. I setustofuna
koma bæði einstaklingar og minni
hópar til þess að eiga góða og
afslappaða dagstund."
FUNDARAÐSTAÐAN Kolbrún
segir fundaraðstöðu 101 hótels
einstaklega þægilega og glæsi-
lega. „Fundaraðstaðan er með
öllum nauðsynlegum nútíma
tæknibúnaði," segir hún. „Þar er
boðið upp tengingu við plasmaskjá
fyrir tölvutengingar eða DVD
myndir ásamt fullkomnu hljóð-
kerfi. Einnig er fundarsími þar
sem hægt er setja upp símafundi
við þá sem ekki eru á staðnum.
Hér er tilvalinn aðstaða iýrir þá
sem vilja nýta sér fullkomna funda-
aðstöðu í frábæru umhverfi." Ui
Kolbrún Hrund Víðis-
dóttir, framkvæmda-
stjóri 101 hótelssem
er í hjarta borgarinnar.