Frjáls verslun - 01.01.2004, Side 94
Verðmætin eru flutt í sérstökum
töskum sem búnar eru lita-
sprengjum sem springa, verði reynt
að opna þær. Litarefnið er það sterkt
að allt sem í töskunni er litast og
fyrir vikið verða peningaseðlar
algerlega ónýtir. Það þýðir hins
vegar ekki að viðskiptavinir okkar
verði iýrir tjóni, því Seðlabankinn
skiptir ónýtum peningaseðlum út
fyrir nýja,“ segir Reynir.
Reynir S. Olafsson, framkvæmdastjóri öryggisgæslu.
Öryggismiðstöð íslands:
Uerðmæti flutt
á öruggan hátt
Öryggismiðstöð íslands er framsækið fyrirtæki og
leiðandi á sviði öryggismála og öryggisgæslu.
f
Iýverið hóf Öryggismiðstöð íslands að bjóða viðskipta-
vinum sínum upp á verðmætaflutninga vegna þess að í
fæstum tilvikum búa fyrirtæki, stofnanir og verslanir
yfir nægilega traustum búnaði til að tryggja öryggi verðmæt-
anna og starfsmannanna sem flytja þau.
Reynir S. Ólafsson er framkvæmdastjóri öryggisgæslu
Öryggismiðstöðvarinnar. Hann segir verðmætaflutningana að
mestu tilkomna vegna óska viðskiptavina Öryggismiðstöðvar-
innar sem margir hveijir óttast að ráðist verði á starfsmennina
sem til þessa hafa flutt verðmæti, en oft er um að ræða starfs-
menn fyrirtækja sem hvorki hafa reynslu né þjálfun í meðferð
verðmæta. „Því miður hefur samfélagið breyst mikið á síðustu
misserum. Ofbeldisglæpum hefur tjölgað og fyrir vikið eru
menn orðnir varari um sig og því er full þörf á þessari þjónustu."
í STARFSÞJÁLFUN ERLENDIS Öryggisverðir Öryggismið-
stöðvarinnar hafa gengið í gegnum sérstaka þjálfun vegna
verðmætaflutninganna. „Þetta er það sérhæfð öryggisgæsla
að við sendum hóp öryggisvarða í starfsþjálfun erlendis hjá
reyndum verðmætaflutningamönnum til þess að geta þjónað
viðskiptavinum okkar sem best. Þessir starfsmenn eru
útbúnir á sérstakan hátt og eru þjálfaðir til þess að bregðast
fumlaust og rétt við, verði þá ráðist.
SÉRSTAKUR BÍLL Aðspurður neitar
Reynir því að öryggisverðirnir séu
vopnaðir. „En þeir eru vel varðir og
kunna að bregðast rétt við. Verð-
mætin eru flutt í sérútbúnum bíl sem
við höfum fest kaup á. Sams konar
bíll er notaður við verðmætaflutninga
víða erlendis og hann hefur staðist öll
próf og það er nánast ómögulegt að
bijótast inn í hann. Að utan lítur
bíllinn út eins og hver annar bíll og
hann verður ekki merktur sérstak-
lega, enda er það stór öryggisþáttur
að auglýsa ekki að um verðmæta-
flutninga sé að ræða. Það sama á við
um öryggisverðina sem sinna verð-
mætaflutningunum, við vinnu sína
eru þeir í engu frábrugðnir öðrum
öryggisvörðum.“
Reynir segir að þegar hafi stórfyrirtæki nýtt sér þessa
þjónustu og Öryggismiðstöðin er með fasta samninga um
verðmætaflutninga við nokkra viðskiptavini sína. „En þessi
þjónusta nýtist ekki eingöngu stórum aðilum, nokkuð er um
að minni aðilar, svo sem söluturnar og veitingahús, nýti
þjónustuna, því að staðreyndin er sú að því minna sem er af
verðmætum á staðnum, þeim mun minni líkur eru á inn-
brotum og ránum.“
100 STARFSMENN Starfsmenn Öryggismiðstöðvar íslands
eru rúmlega 100. Fyrirtækið sérhæfir sig í öryggisgæslu í víð-
asta skilningi þess orðs, bæði fyrir fyrirtæki og einkaheimili.
Öryggiskerfi eru í öllum tilvikum beintengd stjórnstöð
Öryggismiðstöðvar og eru öryggisverðir sendir á vettvang ef
boð berast um hættuástand. Öryggiskerfin eru hvort tveggja
í senn þjófavarnarkerfi og brunaboðar. Nýlega bauð Öryggis-
miðstöðin fyrirtækjum upp á vörslu gagna á tölvutæku formi.
En í því felst varsla á afritum mikilvægra tölvugagna. „Þótt
fyrirtæki taki reglulega afrit af gögnum sínum þá getur verið
ótryggt að geyma þau í fyrirtækinu sjálfu, því þau geta
hæglega skemmst í eldsvoða eða verið numin á brott í inn-
brotum," segir Reynir S. Ólafsson, framkvæmdastjóri öryggis-
gæslu Öryggismiðstöðvar íslands. S!1
94