Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 112

Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 112
FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR Hótel Holt: Mið- bærinn hentar vel Eiríkur Ingi Friðgeirsson hótelstjóri og Sigmar Örn Ingólfsson, yfirþjónn á Hótel Holti. Þar sem áður var verslunin Síld og fiskur við Bergstaðastræti og húsmæður hverfisins komu gangandi rétt fyrir hádegið og keyptu í matinn, stendur nú virðu- legt hús, dökkt yfirlitum og hýsir gesti hvaðanæva að úr heiminum. Það fer ekki mikið iýrir Hótel Holti en þeir sem þeklqa það og vita hvað það býður, vilja hvergi annars staðar vera. Þegar inn í hótefið er komið, mætir manni hljóðlátur og hlýlegur virðuleiki. Miðbær Reykjavíkur hefur óneitanlega ákveðinn sjarma og þægilegt að halda þar ráðstefnur og fundi. hægt að taka á móti allt að 120 manns. „Salurinn er mikið notaður af gestum hótelsins, sem þurfa að halda fundi sem ekki komast með góðu móti íýrir annars staðar á hótefinu, einnig bjóðum við upp á alla þjónustu varðandi mat og aðrar veitingar í Þingholti, nákvæmlega eins og í aðalmatsalnum. Yfir veturinn er salurinn meðal annars vinsæll iýrir árshátíðir fyrirtækja en í honum er fullkominn fundarbúnaður auk tölvutenginga.“ í HÓPI ÞEIRRA BESTU Hótel Holt er hluti af franskri hótel- keðju sem er ein virtasta hótelkeðja í heiminum, fyrir lítil hótel. „Þegar talað er um lítil hótel, er átt við hótel sem eru með 5-100 herbergi,“ segir Eiríkur Ingi Friðgeirsson hótelstjóri sem starfað hefur á hótelinu í 18 ár samfleytt og tók nýlega við rekstrinum ásamt Sigmari Erni Ingólfssyni yfirþjóni. „Til þess að vera gjaldgengt í þessa keðju þarf viðkomandi hótel að uppfylla ströng skilyrði og vera a.m.k. 4 stjörnu hótel,“ segir Eiríkur. „Hvert hótel fyrir sig hefur sinn persónu- leika og mikið er lagt upp úr því að sá persónuleiki haldist. Þeir eru íjölmargir gestirnir sem leita uppi hótel í þessari keðju þegar þeir ferðast um heiminn, einfaldlega vegna þess að þeir vita að hvaða gæðum þeir ganga og við njótum óneit- anlega góðs af því. Hver gestur er beðinn um að skrifa athuga- semdir sínar, bæði góðar og slæmar, um hótelið og senda til höfuðstöðva keðjunnar sem fer yfir þær og sendir tvisvar á ári til viðkomandi stjórnenda sem bregðast við eftir þörfum." FRÁBÆR FUNDAAÐSTAÐA Staðsetning hótelsins, í miðbæ Reykjavíkur, gerir að verkum að það hentar sérstaklega vel til funda- og ráðstefnuhalds, ekki síður fyrir erlenda gesti sem áhuga hafa á því að skoða sig um þegar ekki er um fasta dag- skrá að ræða. Hótelið hefur upp á að bjóða góðan ráðstefnu- og fundasal, Þingholt, þar sem 40 manns geta með góðu móti setið við lang- borð en 60, sé setið við minni borð. I standandi móttöku er BREYTTIR TÍMAR Eiríkur segir nýja kynslóð viðskiptavina koma með nýja siði. „Það er núna meira um að fólk í viðskipta- lífinu haldi viðskiptafundi í hádeginu en áður var. Eldri kyn- slóðin, fólk sem kannski var búið að koma upp börnum og hafði kvöldin laus, notaði þau gjarnan til að fara með viðskipta- vinum út að borða en þeir yngri vilja bara vera heima hjá sér og tjölskyldunni á kvöldin. Til þess að mæta þeim þörfum erum við með hádegismatseðil á góðu verði, frábæran mat og auðvitað toppþjónustu með. Það hefur mælst vel iýrir hjá gest- um okkar, enda leggjum við metnað okkar í að bjóða upp á góðan mat, hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin." Þegar stór hluti gesta er fólk úr viðskiptalitinu þarf að búa hótefið í takt við kröfur þess. Fyrir tveimur árum var allt hótefið netvætt og nýlega var afit hótelið búið þráðlausum sendi sem einnig er hægt að tengjast í Þingholti og hvar sem er á hótelinu. UÍN í ÚLLUM VERDFLDKKUM Vínlisti Holtsins er frægur, enda á honum mörg frægustu vín veraldar. „Við eigum vín í öllum verðflokkum,“ segir Sigmar. „Við leggjum metnað okkar í að geta boðið gestum vín í öllum verðflokkum en þó innan þeirra marka að það sé vandað og gott, í takt við hótelið. Auðvitað vekur það athygli þegar gestur pantar vín sem kostar á annað hundrað þúsund krónur en meirihluti vínsins er þó á svipuðu verði og annars staðar og maturinn einnig. Það vill stundum brenna við að fólk telji sjálfsagt að hér sé dýrara að borða en á öðrum veitingahúsum en því fer fjarri.11®] 112
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.