Frjáls verslun - 01.01.2004, Side 120
' ' -
Flugfélag íslands:
Árshátíðaslaufur
Árshátíðir fyrirtækja eru af
ýmsum toga en fari starfs-
fólk saman á einhvern
nýjan staó, veróur oft
meira úr hátíðahöldunum.
Inokkur ár hefur Flugfélag íslands boðið
upp á Árshátíðaslaufur en það eru skipu-
lagðar ferðir með starfsfólk fyrirtækja
sem vill halda árshátíð annars staðar en í
heimabæ sínum. Einnig er boðið upp á
Helgarslaufur, sem eru pakkaferðir með flugi
og fyrsta flokks gistingu, ferðir á frábæru
verði þar sem mögulegt er að upplifa ýmislegt skemmtilegt.
„Við bjóðum upp á nokkra áfangastaði innanlands og einnig
í Færeyjum," segir Árni Gunnarsson, sölu- og markaðsstjóri
Flugfélags Islands. „Við vinnum með hótelum og afþreyingar-
aðilum á hveijum stað fyrir sig og út úr því koma oft mjög
skemmtilegar lausnir og við notum okkur sérstöðu hvers staðar
fyrir sig.“
SNJÓHÚS OG KOKTEILL Það er vinsælt að fara norður um
land og gista á Akureyri eða í nágrenni. ,Á- Mývatni er boðið
upp á vetrargarð þar sem ferðalangar geta veitt í gegnum
Árni Gunnarsson, sölu- og
markaðsstjóri Flugfélags íslands
ferðum og við finnum það vel á viðskipta-
vinum okkar að þeir kunna að meta svona
ferðir," segir Árni.
flugfelag.is
SOND OG HEITIR POTTAR Alls staðar á
landinu eru sundlaugar. Heitir pottar njóta
vinsælda og kappkosta hótel að hafa þá í sem
mestri nánd svo gestirnir geti notið þess að slaka á í góðra
vina hópi. „Hvort sem árshátíð er haldin hér heima eða
erlendis, þar sem allir þátttakendur eru saman meira og
minna í 1-2 sólarhringa, höfum við lagt á það mikla áherslu að
vera með fjölbreytta afþreyingu fyrir alla. Það er ljóst að með
því að hafa árshátíð ekki bara einn kvöldverð og dansleik,
myndast sterkari liðsheild og skemmtilegri stemmning.
Verðið er sanngjarnt á afþreyingunni.
KÁRAHNJÚKAR „Fyrir austan höfum við boðið upp á ferðir
til Egilsstaða og þaðan getur fólk farið í skoðunarferðir að
Kárahnjúkum svo eitthvað sé nefnt,“ segir Árni.
„Þar er ferðaskrifstofan Tanni travel sem býður
upp á óvissuferðir sem hafa verið vinsælar því
fólk vill gjarnan láta koma sér ofurlítið á óvart. Ef
við förum vestur um, á ísafjörð, er um að ræða
kajakasiglingar, ferðir í Vigur og svo er þessi
stórbrotna náttúra Vestfjarða sem marga heillar.
Til þess að gera ferðina enn eftirminnilegri
höfum við gefið happdrættisvinninga á allar
árshátíðir sem farnar eru á okkar vegum og
þá er það gjafabréf fyrir tvo í flug á einhvern
af áætlunarstöðum okkar. Þetta hefur mælst
vel fyrir eins og gefur að skilja.“
ísinn, farið í gokart og hestaferðir auk þess sem á vatninu er
snjóhús þar sem boðið er upp á kokteil. Þetta er gott dæmi
um hugmyndaauðgi staðarfólks og þegar árshátíðargestir
hafa upplifað saman öll þessi skemmtilegheit, verður andinn
í hópnum frábær og minningarnar góðar sem hægt er að rifja
upp lengi á eftir. Ymis ævintýri hljóta að eiga sér stað í svona
HELGARSLADFUR Fyrir utan árshátíðaferðir
hefur Flugfélag íslands verið með „helgar-
slaufur" þar sem farþegum er boðin ferð og
gisting á góðu verði. „Fólk utan af landi notar
þessar ferðir til að skoða menninguna í Reykjavík og heim-
sækja vini og ættingja og á sama hátt notar fólk í Reykjavík sér
ódýrar ferðir og fer á staði sem það annars myndi ekki heim-
sækja eins oft,“ segir Árni. „Oft eru athyglisverðar leiksýn-
ingar úti á landi og gaman að skoða þær og þá er lágt verð og
góð gisting ágæt hvatning til að fara.“ S!j
120