Frjáls verslun - 01.01.2004, Síða 123
FYRIRTÆKIN Á NETINU
Auglýsingastofur á Netinu
Smart grafík, flass og flottheit eða miðlun læsilegra upplýsinga? Það er mis-
jafiit hvað auglýsingastoiurnar, sem kannski ættu að vera fyrirmyndir fyrir-
tækjanna, leggja áherslu á í starfsemi sinni á vefnum.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Auglýsingastofurnar hafa oft skilning á miðlun upplýs-
inga og leggja metnað sinn í það hvernig skilaboðum
er komið á framfæri enda eru starfsmenn þeirra oft
fengnir til að hanna og koma að uppbyggingu vefsvæða fyrir
fyrirtæki. En það er afar misjafnt hvaða skilning auglýsinga-
stofurnar hafa á vefstarfsemi og hvernig þær vilja byggja
hana upp. Stundum gleyma þær sér og leggja ofuráherslu á
grafík með flassi og öðru fíneríi. Aðrar endurnýja vefinn
sinn reglulega og gera það virkilega vel.
Við skoðuðum nokkrar vefsíður auglýsingastofa og gáfum
þeim dóma. Auglýsingastofurnar eru algjörlega valdar af
handahófi.
www.betristolan.is ★
Uff, hörmuleg síða, bæði
ljót og lítið spennandi.
Forsíðan gefur kost á
enskri eða íslenskri útgáfu
en verður einhvern veg-
inn svo fráhrindandi að
nraður vill helst frá hverfa.
Þegar tungumál er valið
kemur upp grafískt kaos
sem virkar illa á notand-
nnn. Letrið er hrikalega smátt og illgreinanlegt. Og þegar
t-d. er smellt á kynningu á verkum skýst það svo pínulítið
upp að ekki er hægt að skoða verkin af neinu viti. Hvers
konar síða er þetta? Grafískir stælar? Já. Miðlun upplýsinga?
Nei. Þessi síða er fjarri því að hitta í mark.
Hörmuleg og óaðlaðandi
byrjun hjá Betri stofunni.
www.herognu.is ★★V
Algjörlega vonlaus síða,
dökk og dimm og
óaðgengileg - leiðinleg við
fyrstu sýn. Þegar hún er
betur skoðuð kemur í ljós
að upplýsingalega séð
stendur hún ekkert illa,
þarna má finna upplýsing-
Hér og nú er með dimma og
óaðgengilega síðu.
ar um starfsmenn og starfsemi, þjónustu og verk. Letrið er
sæmilega læsilegt.
www.hausverk.is ★★★
Smart, vel unnin og falleg
vefsíða sem sýnir að hönn-
uðurinn kann vel til verka.
Þessi vefsíða er ekki bara
falleg útlits heldur líka efn-
ismikil og góð miðlun upp-
lýsinga. A forsíðunni
kemur frétt úr starfi fyrir-
tækisins um nýja fasteigna-
sölu sem verður opnuð. A
vefsvæðinu er einnig hægt
að finna upplýsingar um stofuna og starfsemi hennar, þjón-
ustu í boði og verkefni sem unnin hafa verið, einnig starfs-
fólkið, ásamt myndum. Þá er boðið upp á mola með
skemmtilegheitum, t.d. stafarugli. Fín síða!
WWW.eittn.iS ★ Grár og
grafískur þar sem hægt er
að velja um html eða flass-
tækni til að fá kynningu á
fyrirtækinu. Virkar ekkert
sérstaklega vel. Er jú
kannski grafískt smart að
einhverra mati en um leið
stórfurðulegur og er not-
andinn afskaplega lengi að
uppgötva hvernig hann
virkar eða hvernig á að nálgast upplýsingarnar á honum.
Tveir gluggar opnast, annar hefur lítið sem ekkert notagildi,
a.m.k. fyrir notandann, hinn er jú flassið. Þegar efni vefsins
finnst eftir langa mæðu er letrið mjög smátt og veikt og
erfitt aflestrar. Upplýsingarnar eru reyndar af skornum
skammti. Þessi vefur er alveg vonlaus. Hann selur ekkert og
gefur engar upplýsingar, er svo óaðgengilegur að notendur
missa allan áhuga. 03
Letrið er smátt og ólæsilegt
hjá auglýsingastofunni Eitt N.
Góð vefsíða hjá Hausverk.
VIÐSKIPTI • TÖLVUR ■ FERÐALÖG • VÍN - WWW.HEIMUR.IS
123