Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 129

Frjáls verslun - 01.01.2004, Page 129
«Ég stofnaði GB-ferðir árið 2002. Fyrsta heila rekstrarárið okkar gelck vel og við náðum markmiðum okkar og gott betur, segir Jóhann Pétur Guðjónsson, framkvæmdastjóri GB-ferða. Jóhann Pétur Guðjónsson, GB-ferdum Efdr ísak Örn Sigurðsson GB-ferðir er ferðaskrif- stofa sem sérhæfir sig í golf-, skiða- og borgar- ferðum. „Við byrjum starfs- árið 2004 með miklum krafti. Strax í janúar kynntum við sex nýja áfangastaði og þeir verða fleiri á árinu. I dag geta viðskiptavinir okkar valið úr 20 áfangastöðum í 9 löndum beggja vegna Atlantshafsins og er úrval golfvalla á þessum áfangastöðum tæp- lega 60 talsins, margir hveijir með frægustu völlum í heimi,“ segir Jóhann Pétur Guðjónsson, framkvæmda- stjóri GB-ferða. „Enn fremur bjóðum við upp á ferðir til ýmissa borga, s.s. London, Kaupmanna- hafnar, Barcelona og Feneyja. Fyrirtækið býður upp á skipu- lagðar ferðir og nýjung hér á landi í golfferðum, svokall- aðar „off the rack“ ferðir sem hægt er að kaupa með aðeins sólarhrings fyrirvara. Það sem fellur undir mína ábyrgð er vöruþróun, innkaup, verð- lag á vörum fýrirtækisins, markaðssetning, samskipti við samstarfsaðila, samskipti við innlenda sem og erlenda birgja og fjölmiðla. Eg hef byggt upp fýrirtækið frá grunni og þekki það frá öllum hliðum og öll samskipti sem það á við viðskiptavini, birgja og aðra samstarfsaðila.“ Jóhann Pétur útskrifaðist úr Verslunarskóla Islands vorið 1991. Eftir stúdents- prófið fór hann til Þýskalands og vann hjá Klaus Windmöll- er GMBH í Hamborg í Þýska- landi. „Eftir ársdvöl í Ham- borg settist ég á skólabekk í Háskóla Islands í eitt ár. Haustið 1993 komst ég síðan inn í virtan háskóla í Þýska- landi, European Business School (EBS), Schloss Reichartshausen, Östrich- Winkel, og útskrifaðist þaðan með diplómu í International Marketing Management. Því næst lá leiðin í Colorado- háskólann í Colorado Springs (UCCS), Bandaríkjunum. Þaðan útskrifaðist ég með BS-gráðu í markaðsfræðum vorið 1996.“ Næstu tvö árin starfaði Jóhann Pétur í Bandaríkj- unum. „ Árið 1998 fluttist ég heim til Islands og hóf störf í Skífunni. Þar starfaði ég sem sölustjóri á tónlist, myndböndum og DVD. Sumarið 2000 kom Eyþór Arnalds að máli við mig og tjáði mér að Islandssími ætlaði að hella sér inn á GSM-markaðinn og hann vildi fá mig í hóp lykilmanna í því fyrirtæki. Það fór svo að ég lét slag standa og var ráð- inn framkvæmdastjóri sölu- sviðs Islandssíma GSM. Ég stofnaði GB-ferðir árið 2002. Fyrsta heila rekstrar- árið okkar gekk vel og við náðum markmiðum okkar og gott betur. Arið í ár bytjar vel. Miðað við sölu í janúar og áætlanir okkar, þá ættum við að fjórfalda tekjur á milli ára.“ Öll helstu áhugamálin hjá Jóhanni Pétri tengjast vinn- unni. „Ferðalög hafa alltaf verið ofarlega á lista yfir það sem ég hef áhuga á. Golf og skíði eru líka þær íþrótta- greinar sem ég hef eytt mestum tíma í undanfarin ár. Ég syndi líka reglulega, 1-2 km í senn. Ég er svo lánsamur að geta spilað á mörgum heimsfrægum golf- völlum erlendis. Hef tekið út alla áfangastaði sem GB- ferðir selja, hvort sem það eru hótel, golfvellir eða fjöll. Reglan er þessi: Ef ég er ekki búinn að taka staðinn út, seljum við hann ekki. Við- skiptavinurinn hagnast á því. Aðrar íþróttir sem ég stunda, en þó í minna mæli, eru skvass og körfubolti.“ Jóhann Pétur hefur verið í sambúð í 3 ár með Berglindi Rut Hilmarsdóttur lögfræð- ingi. Þau eignuðust dóttur 16. desember síðastliðinn. „Það er mikil hamingja sem fylgir foreldrahlutverkinu." [£j 129
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.