Ný saga - 01.01.1988, Page 50

Ný saga - 01.01.1988, Page 50
Helgi Þorláksson lenskt vaðmál hafi fallið í verði erlcndis um 1300 eða í upphafi 14. aldar og munu þá einkum hafa í huga vöruvað- mál. Þetta á að hafa haft ör- lagarík áhrif á verðlag innan- lands og allt atvinnulíf. Björn Þorsteinsson rekur verðfallið til samkeppni af hálfu flæmskra dúka, Jón Jóhannes- son til samkeppni af hálfu vefnaðarvöru sem Hansa- menn hafi flutt en Magnús Már Lárusson til samkeppni af hálfu enskra og flæmskra klæða.47 Eins og nærri má geta er ekki vitað hversu mikið flutt- ist úr landi af vaðmáli að með- altali, en dæmin um útflutn- inginn eru mörg og mun ég nefna nokkur sem sýna að hann hafi getað verið allmik- ill. Margir kannast við að erki- biskupinn í Niðarósi fékk leyfi páfa árið 1194 til að senda skip árlega með 30 lestir mjöls til Islands til að láta kaupa fyrir það klæði á þjóna Olafs helga, eins og þar segir.41' Hér hlýtur að vera átt við vaðmál og fyrir mjölið mátti kaupa sem svarar 12,6 tonnum af vöruvaðmáli. Er þá miðað við þá reglu að 120 álnir vaðmáls, tæpir 60 m, skyldu vega um 35 kg.49 Algengt var að menn hefðu með sér frá tíu og upp í 60 hundruð vaðmála þegar þeir fóru utan. 60 hundruð eru nálægt 3200 m af vöruvað- máli, 2,1 tonn. Slíkt hafði Páll biskupsefni með sér úr landi árið 1194 og Þórður kakali dró að sér 60 hundruð til utan- ferðar árið 1245 en fór ekki sjálfur heldur sendi mann fyrir sig og kom sá aftur til landsins með vín mikið. Þórði fannst sopinn góður og tíma sínum í Noregi varði hann oftast við drykkju og barðist við drykkjufélaga sína með hornum og skriðljósum. Vað- mál mun hafa verið fram- færslueyrir hans í Noregi.50 Arið 1218 gerði Sæmundur Jónsson upptæk þrjú hundr- uð hundraða vaðmála sem kaupmenn hugðust flytja úr landi.51 Sé þetta umreiknað í vöruvaðmál hafa það verið 12,6 tonn, etv. um 120 hest- burðir. Jórsalatíund var lögð á um 1275 og skyldi vera alin vaðmáls af hverjum þingfarar- kaupsbónda á ári í sex ár en eyrir vaðmáls af hverjum presti, nálægt 11 tonn alls.52 Og Rómarskatt eða Péturstoll sem lagður var á árið 1280 skyldu prestar leysa til sín og greiða hann síðan allan í vað- málum sem skyldu flutt til skips á Eyrum.5' Hér eru aðeins nefnd dæmi um mikinn Þórdi fannst sopinn góður og tíma sínum í Noregi varði hann oftast við drykkju og barðist við drykkjufélaga sína með hornum og skriðljósum. Tollarolla. Þessi rolla frá 1305greirtir frá innflutningi til Lynnar og útflutn- ingi þaöan. í sjöttu og sjöundu línu eru td. nefndir Ólafur langi og félagar sem fluttu timbur, skreiö og lýsi frá Noregi og hveiti, malt og hunang frá Lynn útflutning vaðmáls en hin eru auðvitað miklu fleiri um ferðalanga sem tóku með sér tíu hundruð eða minna. Aðal- atriðið hér er að sýna að á bil- inu frá um 1180 eða allmiklu *• fyrr, etv. frá um 1100 og til um 1340 var vaðmál aðalgjald- eyrir Islendinga, allir sem fóru úr landi á þessum tíma munu hafa haft með sér vaðmál, meira eða minna. Með vað- máli komu íslendingar í veg fyrir einangrun, með vaðmáli tókst þeim að halda uppi sam- bandi við umheiminn. Eg hef kannað norskar heimildir og enskar tolla- skýrslur til að fræðast um hvar íslenska vaðmálið hafn- aði utan landsteinanna.541 ljós kom að vaðmál sem barst til Englands kom ekki frá Nor- egi heldur frá Danmörku og Svíþjóð. Sama máli hlýtur að hafa gegnt um vaðmál á Þýskalandi en heimildir um uppruna þess eru ekki eins góðar. Er víst að mikil þörf hefur verið fyrir íslenskt vað- mál í Noregi og að Norðmenn hafa ekki flutt það úr landi svo að neinu næmi. Ekki er að sjá að dregið hafi úr eftirspurn eftir íslensku vaðmáli í Noregi fram til um 1340 enda var verðið jafnan hið sama eða mjög svipað. Verðfall vaðmáls sem telja má að orðið hafi á íslandi um 1300 á sér þá inn- lendar orsakir. Um 1100 tóku bæir að verða til í Evrópu, td. á austurströnd Englands, og varð þá til góður markaður fyrir norska skreið. *■ Með aukinni verslun og sigl- ingum tóku bæir að stækka í Noregi og þörfin fyrir vaðmál jókst vegna fólksfjölgunar, bæði í bæjum og verstöðvum. Norskir atvinnukaupmenn munu hafa tekið að sækja voðirnar í auknum mæli til ís- lands. . 48
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.