Ný saga - 01.01.1988, Page 57

Ný saga - 01.01.1988, Page 57
KONURNAR GLEYMDUST Á FYRSTU KJÖRSKRÁNNI Fyrstu bæjarstjórnarkosn- ingarnar eftir að lögin tóku gildi fóru fram 19.febrúar 1883 og átti að kjósa einn mann í bæjarstjórnina af hinum al- menna flokki í stað fyrrnefnds Jóns Jónssonar sem þá var lát- inn. Bæjarstjórnarkosningar voru tvískiptar, skv. lögum sem tóku gildi l.janúar 1873, og kusu allir kjósendur fimm bæjarfulltrúa en fimmtungur kjósenda, er hæst gjöld greiddi, kaus fjóra fulltrúa. Seinna var svo bæjarfulltrúum fjölgað og kusu þá almennir kjósendur sjö fulltrúa en minni hlutinn sex. Þegar þessi fyrsta kjörskrá, eftir að konur fengu kosningarétt, er athug- uð finnst ekki ein einasta kona á henni og hefur annaðhvort gleymst að setja þær á hana eða bæjaryfirvöldum hefur ekki verið ljós þýðing hinna nýju laga. Ekki er vitað til að neinar athugasemdir hafi verið gerðar við kjörskrána svo að ekki hafa reykvískar konur verið mjög vakandi um réttindi sín.6 Það er fyrst í kosningum til niðurjöfnunar- nefndar árið eftir sem konur sjást á kjörskrá og eru þær þá 29 talsins en 430 karlar. Engin þeirra kaus.7 I ársbyrjun 1885 voru tvennar kosningar til bæjar- stjórnar, bæði meðal al- mennra kjósenda og hinna gjaldhærri. I þeim fyrri voru 32 konur á kjörskrá á móti 387 karlmönnum og í þeim síðari 13 konur á móti 150 körlum. Engin kona kaus.8 Kosningar á þessum árum fóru fram í bæjarþingssalnum í Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg og var svo allt til ársins 1900. Nöfn kjósenda voru kölluð upp í stafrófsröð og skyldu atkvæði annað- hvort greidd í heyranda hljóði með því að nefna nöfn þeirra, sem kjósandinn vildi kjósa, eða skila þeim skriflega á opn- um seðli. Að loknu þessu var beðið í hálftíma eftir þeim sem misst höfðu af nafnakallinu en vildu kjósa og síðan var kjör- fundi slitið.9 Þetta var því sannkölluð karlasamkoma og örugglega ýmis skeyti látin fljúga þegar heitt var í kolun- um. Það hefur því þurft heil- mikið hugrekki fyrir „vesæl- ar“ konur að hætta sér inn í þessa karlasamkundu. Þar við bættist að flestar þær konur sem höfðu kosningarétt voru komnar af léttasta skeiði, ým- ist ekkjur eða ráðsettar ein- hleypar konur. Hinar yngri og e.t.v. hugrakkari konur höfðu ekki kosningarétt. DÝPSTA FYRIRLITNING Á FYRIRLESTRI BRÍETAR Árið 1885 er annars býsna merkilegt í sögu kvenréttinda og á næstu árum kvöddu ýms- ir einstaklingar sér hljóðs í höfuðstaðnum og fluttu þeir Rcykvíkingum og öðrum landsmönnum það nýjasta sem var að gerast í menningar- og mannréttindamálum í Evrópu og Ameríku. I byrjun árs birtist í Fjallkonunni, sem Valdimar Ásmundsson hafði þá nýlega hleypt af stokkum, löng grein sem hét „Kven- frelsi“ og var það nýjung að fjalla um slíka hluti á Islandi. Þá var komin í bæinn ung kona að norðan sem hreyfst mjög af skrifum Valdimars. Greinin varð henm hvatmng til að skrifa sjálf grein undir dulnefni sem birtist um sum- Íí’féjiýazzr a* ... y /xr_____________ /W_____-------- /9/ ----- ✓✓/ /Jf /f*_jdir/£/:.._ /4/ .... ✓#/---- ib/A.. r^—y,.////. A/ . Jp. Af 'Z--Kih Kjörskráin í Gjördabók bæjarstjórnar fyrir bæjarstjórnarkosningar 1888. Fyrst komu nöfn karlmanna í stafrófsröð en nöfn kvenna ráku lestina. Petta var því sannköllud karlasamkoma og örugglega ýmis skeyti látin fljúga þegar heitt var í kolunum. 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.