Ný saga - 01.01.1988, Side 60

Ný saga - 01.01.1988, Side 60
Bríet Bjarnhéðinsdóttir var óþreytandi að hvetja konur til dáða og líkur benda til þess að hún hafi staðið fyrir fyrstu kosningahreyfingu kvenna í bæjarstjórnarkosningum 1903. Kannski er þetta fyrsti vísirinn ad kosningahreyfingu kvenna á íslandi. VÍSIR AÐ KOSNINGA- HREYFINGU KVENNA Hinn 5.janúar 1903 fóru fram kosningar í hinum al- menna flokki og þá birtust sjö konur á kjörstaö til að kjósa af 53 á kjörskrá." Ein af þeim var Bríet Bjarnhéðinsdóttir, sem þá var orðin ekkja og hafði því öðlast kosningarétt. Þessar kosningar voru úr- skurðaðar ógildar vegna formsgalla og nýjar fóru því fram 9. febrúar. Nokkrir flokkadrættir voru nú orðnir í bæjarstjórnarkosningum þó að kosningin væri enn sem fyrr einstaklingsbundin. Menn gátu kosið hvern þann karlmann, sem var kjörgeng- ur, en ekki var um framboð að ræða eins og síðar varð. Það var ekki fyrr en 1906 að fyrstu listakosningarnar fóru fram og þá varð kosningin einnig hlutfallsbundin og leynileg. Arið 1903 voru Reykvík- ingar farnir að skiptast í flokka eftir landsmálapólitík og höfðu þeir flokkadrættir sín áhrif í bæjarmálum. Blöð- in birtu óskalista um hverja ætti að kjósa og ennfremur var prófkjör í Framfarafélagi Reykjavíkur, þar sem heima- stjórnarmenn réðu lögum og lofum, og var það notað til að benda mönnum á hverja ætti að kjósa. Þeir voru alls sjö sem kjósa átti í bæjarstjórn að þessu sinni. Sagt var að Isa- foldarmenn og Framfara- félagsmenn tækjust á í kosn- ingunum.23 Fjallkonan, sem Bríet Bjarnhéðinsdóttir hafði ritstýrt eftir lát manns hennar vorið 1902 birti óskalista sem var keimlíkur ísafoldarlistan- umý Nú brá svo við að 13 konur komu á kjörstað og hafði því fjölgað um nær helming frá því mánuði á und- an. Virðist Bríet hafa farið á stúfana því nú komu fram sex nýjar konur, sem ekki kusu í janúar, og greiddu atkvæði á nákvæmlega sama hátt og Brí- et, kusu sömu sjö menn í sömu röð. Þar var kom- inn óskalisti Fjallkonunnar. Kannski er þetta fyrsti vísir- inn að kosningahreyfingu kvenna á íslandi? Konurnar sex, sem kusu með Bríeti í bæjarstjórnarkosningum árið 1903, voru Anna Hafliðadótt- ir, saumakona á Bókhlöðustíg 10, Guðlaug Jensdóttir, sýslu- mannsekkja í Þingholtsstræti 23, Margrét Guðmundsdótt- ir, sýslumannsekkja í Suður- götu 8, Torfhildur Hólm rit- höfundur, Vigdís Jónsdóttir, ekkja á Grettisgötu 18 og Vil- borg Jónsdóttir á Grettis- götu.2S Ekki hefur mér tekist að finna kjörgögn frá bæjar- stjórnarkosningum 1906 og verður því ekki fullyrt um kosningaþátttöku kvenna í þeim en 1908 rann upp hin stóra stund fyrir konur í Reykjavík þá fengu þær rýmkaðan kosningarétt og kjörgengi í bæjarstjórn eins og alþekkt er. Kusu þá alls 345 konur og sérstakur kvenna- listi kom fjórum konum að í bæjarstjórn. Ein af þeim var Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Tímabilinu, frá því að gleymdist að setja konur inn á kjörskrá í Reykjavík árið 1883 þar til pólitísk vakning varð meðal kvenna á fyrsta áratug aldarinnar, má líkja við logn- kyrran sæ sem er rétt að byrja að gárast eins og óveður sé að skella á. Sú sem átti mestan þátt í að koma undiröldum af stað og fylgja þeim síðan eftir var stúlkan sem kom að norð- an — Bríet Bjarnhéðinsdóttir. 58
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.