Ný saga - 01.01.1988, Síða 95

Ný saga - 01.01.1988, Síða 95
sögu, leiti til kvikmyndasafn- anna. I Finnlandi hefur það vafalaust haft sín áhrif að for- stöðumaður Finnska kvik- myndasafnsins er einmitt þjóðháttafræðingur að mennt og hefur ýtt undir þessa þró- un. Nú er algengast að sóst sé eftir að nýta gamlar heimild- arkvikmyndir í aðrar heimild- arkvikmyndir og sögulegar sjónvarpsdagskrár, þar sem hinum ýmsu fræðimönnum gefst kostur á að véla um efn- ið. I þeim efnum er margs að gæta. HEIMILDAR- KVIKMYND HEIMILD í HEIMILDAR- KVIKMYND Sá miðill, sem hentar best við umfjöllun heimilda í lif- andi myndum er heimildar- kvikmynd eða sjónvarp. Af framansögðu er Ijóst að sá, sem ætlar að fjalla um tiltekið mál í heimildarkvikmynd eða sjónvarpsdagskrá, getur þurft að leita í mörgum myndheim- ildum mjög víða og oft í kvikmyndum, sem við fyrstu sýn virðast ekki varða við- fangsefnið með neinum hætti. Af þessum sökum reynir al- veg sérstaklega á skrásetningu kvikmynda, eigi heimildar- myndaarfurinn að koma að tilætluðum notum. Þar er mikið verk ennþá óunnið. Auk þess fylgir notkun myndefnisins umtalsverður kostnaður vegna afritunar og þarf efnið þá jafnframt að vera afritunarhæft en þar skortir enn mikið á að fullnægjandi sé. Oftast verður að fara þá leið að nýta myndefnið bæði beint og óbeint. Við gætum hugsað okkur lítið dæmi, þar sem um það væri að ræða að nýta stuttan kafla innan úr Is- landskvikmynd af breiðslu saltfisks frá árunum á milji stríða. Bein notkun kæmi fram í kvikmynd, sem fjallaði um þróun saltfiskverkunar og fengist einkum við að rann- saka sögu ákveðins fiskverk- anda eða mismunandi vinnu- brögð, t.d. eftir landshlutum og á tilteknu tímabili. I slíku tilfelli félli myndefnið úr ís- landskvikmyndinni og texti myndarinnar, sem verið er að búa til, í faðma. Sama efni væri einnig hægt að nýta óbeint undir almennum texta, t.d. um þróun saltfiskverslunar á kreppuárunum, þ.e. frá því tímabili, sem heimildar- kvikmyndirnar væru frá. I slíku tilfelli væri myndin nán- ast myndskreyting við text- ann. Ymsir möguleikar eru fyrir hendi í því að steypa saman myndefni úr mörgum kvikmyndum í eina samfellda heild og skapa þannig sem fyllsta mynd af tilteknu ferli. Margt fleira kemur til, sem hér yrði of langt mál upp að telja. KVIKMYNDASAFN ÍSLANDS OG FRAMTÍÐIN Af ofansögðu má ljóst vera hversu umfangsmikið og mik- ilvægt verkefni bíður Kvik- myndasafns íslands á næstu árum eigi það að geta staðið undir þeim kröfum, sem til þess verða gerðar. Það er því Framlag kvikmyndahúsanna til menningar- og félagslífs á Islandi er stórt. Um land allt hefur fólk þyrpst í bíó til að sjá eftirlætishetjur sínar á hvíta tjaldinu. Á árum síðari heimsstyrjaldarinnar jókst bíósókn gífurlega og vafalaust má rekja dálæti þorra íslendinga á engilsaxneskum kvikmyndum til þess tíma. Hér sést hermaður virða fyrir sér útstillingu Hafnarfjarðarbíós (Árnabíós) árið 1942. 93
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.