Ný saga - 01.01.1988, Side 97

Ný saga - 01.01.1988, Side 97
„VIÐREISNARSTJÓRNIN“ Ríkisstjórnir eru vin- sælt umræðuefni fólks og fjölmiðla. Menn spá í hvernig þær standa sig, hvort aðgerðir þeirra séu réttlátar eða ranglátar, skynsamlegar eða vanhugsað- ar, hvort einn ráðherrann sé betri en annar, hvort ríkis- stjórnin í dag sé betri en sú sem hélt um stjórnartaumana í gær. Stjórnir er vegnar og metnar og fjölmiðlar kynda duglega undir umræðunni. Það er vitaskuld eðlilegt að al- menningur fylgist með að- gerðum eða aðgerðarleysi rík- isstjórna og hafi skoðun á þeim enda geta gjörðir stjórn- valda skipt sköpum um líf og kjör fólks. í hita augnabliks- ins eru oft felldir dómar um þá sem verma valdastólana en þegar fram líða stundir geta viðhorfin breyst. Ríkisstjórn sem þótti góð getur orðið sæmileg eða slök og hin sem þótti vart standa sig í stykkinu hlotið uppreisn æru. Allt fer þetta eftir mælistikunni sem notuð er en hún breytist iðu- lega í tímans rás. Menn sjá rík- isstjórnir gjarnan í öðru ljósi þegar nokkur ár eða áratugir eru liðnir frá því að þær sátu að völdum. Frá því að lýðveldi var stofnað á íslandi árið 1944 hafa tiltölulega fáar ríkis- stjórnir lifað heilt kjörtímabil. Ein ríkisstjórn sker sig þó verulega úr, „ Viðreisnar- stjórnin“ svokallaða, en hún var mynduð síðla árs 1959 og sat fram á mitt ár 1971, eða þrjú kjörtímabil, tæp tólf ár. Engin ríkisstjórn hefur setið svo lengi að völdum samfleytt og hún hélt meirihluta sínum á Alþingi í tvennum kosning- um, árin 1963 og 1967. Það voru Alþýðuflokkur og Sjálf- stæðisflokkur sem stóðu að stjórninni en forsætisráðherr- ar hennar komu úr síðar- nefnda flokknum. „Viðreisn- arstjórnin" var umdeild á sinni tíð og á síðari árum hefur hana einnig oft borið á góma. Vitnað hefur verið til efna- hagsaðgerðanna sem hún stóð að árið 1960 og ýmsar stofn- anir, sjóðir og embætti í ís- lensku samfélagi eiga ætt sína að rekja til stjórnartíma henn- ar, einnig stóriðjufram- kvæmdir, innganga íslend- inga í Fríverslunarbandalag Evrópu og ýmis stórvirk laga- setning svo fátt eitt sé nefnt. „Viðreisnarstjórnin" hefur verið umtöluð stjórn og fyrir Alþingiskosningarnar 1983 og 1987 veltu ýmsir vöngum yfir hvort tækist að endurreisa þetta „stjórnarmynstur". Ný saga hefur fengið þrjá kunna fræðimenn til þess að skiptast á skoðunum um þessa ríkisstjórn og stjórnartímabil hennar en þeir eru Gísli Gunnarsson hagsögufræðing- ur, Stefán Ólafsson félags- fræðingur og Hannes Hólm- steinn Gissurarson stjórn- málafræðingur. „ viuitíisnarsijornin var mynauo / arsiok W59 og slgldi þjóðarskútunni íþrjú kjörtfmabil eða lengur ei nokkur önnur ríkisstjórn í sögu lýðveldisins enn sem komið er. Nokkur mannaskipti urðu fstjórninni é valdatfma hennar en þessi mynd var tekin við upphaf feriis hennar. 95
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.