Ný saga - 01.01.1988, Page 110

Ný saga - 01.01.1988, Page 110
AF BÓKUM Þegar bindunum fimmtán er fiett kemur fram jöfn skipting milli Evrópu og hinna heimsálfanna. þjóðarsögu og mannkynssögu. Það er t.d. erfitt fyrir Eng- lendinga að draga skörp skil þar á milli. Okkur er tamt að líta á mannkynssöguna, sér- staklega Evrópusöguna, sem bakgrunn innlendra atburða. Þess vegna hentar það okkur betur að gefa út verk sem er unnið af sagnfræðmgum þjóða er hafa jafn „veik“ tengsl við mannkynssöguna og við. Auðveldara er fyrir íslenska lesendur að laga sig að slíkri sögu. Þegar ráðist er í útgáfu á svona stórverki er mikið und- ir þýðingunni komið. Helgi Skúli var spurður um hver væru helstu vandamál við þýðinguna og hvaða kröfur væru gerðar til þýðendanna. Helstu vandamálin eru að halda samrœmi í notkun fræðiheita, örnefna og staðar- nafna. Hvað varðar kröfur til einstakra þýðenda, þá er það æskilegt að þeir hafi þekkingu á sögu þess bindis er þeim er úthlutað til þýðingar. 50:50 Þegar bindunum fimmtán er flett kemur fram jöfn skipt- ing á milli Evrópu og hinna heimsálfanna. Fyrsta bindið, sem er forsagan, fjallar fyrst og fremst um þróunina í Asíu og Afríku á forsögulegum tíma, en þó eru fyrstu skrefin tekin í umfjöllun um Evrópu og Ameríku. I öðru bindi, er greinir frá tímabilinu 1200— 200 f.Kr., kemur hin skýra tvískipting fram. Bindið, sem er rúmlega 260 síður, deilist jafnt á milli Evrópu og hinna heimsálfanna. Þessari skipt- ingu er haldið að sjötta bindi, í því segir eingöngu frá Evrópu Helgi Skúli Kjartansson er aðstoðarritstjóri íslensku útgáfunnar. á tímabilinu 1300—1300. Til að vega upp á móti þessu fjall- ar sjöunda bindið einvörð- ungu um aðrar heimsálfur á tímabilinu 1350 - 1500. Átt- unda bindið, sem tekur til tímabilsins 1500-1700, er eins og það sjötta helgað Evrópu, það níunda er um út- álfurnar á sama tímabili. Síðan er saga mannkyns rakin með áðurnefndum hlutföllum allt fram til vorra daga. Vissulega má deila um þessa tvískiptingu. En vandséð er að í verki sem fyrst og fremst er beint til Norðurlandabúa sé hægt að gera hlut Evrópu minni. Á hinn bóginn er erfitt að gera sögu Evrópu ítarlegri skil ef fjalla á um alla veraldar- söguna. AÐGENGILEG SAGA I mannkynssögu sem ætlað er að fjalla um allar hliðar samfélagsins er varla hægt að búast við að öll bindin hafi samskonar áherslur. Eftir því sem nær dregur samtímanum verður stjórnmálasagan stöð- ugt meira áberandi. Þessu er öfugt farið með landbúnað. í fyrstu bindunum fær hann mikla umfjöllun, en eftir því sem nær dregur okkar tíma verður hún minni. En yfirleitt eru áherslurnar á milli hinna einstöku samfélagshliða í ágætu jafnvægi. Þannig er t.d. stöðu kvenna, listum, trúaí- brögðum og verslun gerð ágæt skil í öllum bindunum. Eitt þeirra hefta þar sem rit- un heildarsögu hefur tekist með ágætum er fyrsta bindið, I begynnelsen. Fra de förste mennesker til de förste sivil- isasjoner, eftir fornleifafræð- ingana Randi og Gunnar Há- landi. I því er grunnurinn lagður að þeim þáttum er teknir eru til umfjöllunar í síðari bindunum. Þar er m.a. gerð grein fyrir uppruna mannsins, fyrstu verkfærun- um, tungumálum, trúar- brögðum, listum, tilkomu landbúnaðar og menningar, og svo hvernig hin ýmsu sam- félög í Asíu, Afríku, Evrópu og Ameríku stíga sín fyrstu spor. Myndefnið, kort, myndir og rammatextar, er fjölbreyti- legt og vandað og segir stóran hluta sögunnar. Gott dæmi er kortið á síðu 64 í fyrsta bindi en þar er lýst framrás manns- ins í Ameríku. Það segir jafn mikla, ef ekki meiri sögu, en langur texti. Auk þess festist það betur í minni en texti með fjölda ártala og örnefna. En til að fá heildarmynd af þróun- inni er nauðsynlegt að lesa textann. Þrátt fyrir að mynd- efni sé helmingur verksins þá fléttast það og textinn saman í eina heild. Þannig verður verkið aldrei sundurlaust. Við hvert bindi er nafna- 108
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.