Vaki - 01.09.1953, Blaðsíða 15

Vaki - 01.09.1953, Blaðsíða 15
upprunalegri einingu: söngur sem tengj brotamálm orðinnar tilveru og skapi úr honum eind og heild er fái varað mitt í reynslu svipulleikans sem er hlutskipti okkar. Vitundinni hlotnast hlutverk að geyma fleygrar reynslu manns og hverf- ullar sögu og sambands við hlutina og 'hefja til varanleika: rætur ljóðsins liggja í le dur désir de durer sem Éluard segir. Jafnframt eru elegíurnar túlkun á tilveru mannsins á jörðu. Angelloz (franskur ritskýrandi Rilkes) telur þær fjalla um hinar ýmsu manngerðir og einkum um tilveru listamannsins. Ég get ekki verið sammála; mér virðist stærð og víðátta boðskaparins glatast, hann fara forgörðum við „skýringuna“ en eftir vera óábyrg frásögn. Hetjan í ljóði Rillces er ekki tiltekinn Egill Skallagrímsson, heldur býr hún í sérhverjum okkar. Stúlkan sem elskar er ekki í ljóðinu af til- viljun. Hún er viö öll. Hver mynd mannsins er birtist í elegíunni bregður ljósi yfir manninn slíkan sem hann er, í gerfi þess sem sagður er hverju sinni. Getur maður hætt á að túlka þessi ljóð? Sérhver túlkun verður fölsun og flatneskja við hlið ljóðsins sjálfs. Ég las í bréfi Rilkes til Hulewics, pólska þýð- andans hans: „ocj gæti ég gefið rétta skýringu á elegíunum? Þær ná óendanlega langt út yfir mig“. Ljóðið verður ekki sagt nema einu sinni: ekkert fær sagt sögn þess nema það sjálft. Það sviptist gegnum skáldið án þess að hann beygi það undir eignarrétt sinn. Það er. Og veruleiki þess verður aldrei höndum tekinn utan þess sjálfs. Finnurðu hversu bylgja rís gegnum ljóðið? Sýn sem byggist á sárri reynslu af klofningi og ósamhengi mannlegrar tilveru. Allt er í andstæðum, allt brotið um þvert; sýnilegt ósýnilegt, styrkur veikleiki, upprisa og fall, takmörkun og óendanleiki slíta milli sín tilveru okkar. Ekkert er varanlegt. Og mitt í þessum brotum: við. Einir, einmana, hjálparvana. Og ofar okkur engillinn, hin fullkomn- ari vera, sem þarfnast okkar ekki' því hann á sér óbrotna tilveru og við færumst ef hann hlýddi máttvana kalli okkar. Framundan er óbrigðull dauði er brýtur veru okkar miskunnarlaust og ósættanlega um okkur sjálfa. Jafnvel hið eina sem yrði okkur til hjálpar fær ekki varað: ástin er undir innsigli hverfulleikans því við bindum hana öðrum; einnig hún verður til að ljósta okkur blindu. Og þó vex okkur von og sæla af þessum brotum: ástin er tekin í grund- vallarreynslu brotinnar tilveru sem einveran og vanmættið. En handan allrar full- nægingar verður hún stoð og varanleiki. Við erum til einhvers, þrátt fyrir allt. Þó að við eigum hvergi tilkall gera hlutirnir tilkall til okkar. Þeir sem dóu ungir án þess að eiga lífið að baki halda opnum fyrir okkur dyrunum að sameigind lífs og dauða. Það er of grunnt að meta slíkan boðskap fagurfræðilegu mati. Það er verið að sýna okkur leið: að það er hægt að vera, að til er möguleiki handa tilveru okkar. Líf og dauði ein heild: slíkt verður að lifa, ekki lesa með andartaks fróman svip í augunum. Sem það sameinar líf og dauða og festir rætur tilverunnar í jörð beggja landa rýfur ljóðið takmörk endanleikans og veitir óendanleikanum rúm í endanleik okkar miðjum . . . Við skynjum möguleikann: hina stóru einingu sem hlutverk manns á jörð- unni og tilkall hennar til hans. Hún og allir hlutir eru boðskapur honum til handa: TlMARITIÐ VAKI 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Vaki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.