Birtingur - 01.01.1964, Síða 143

Birtingur - 01.01.1964, Síða 143
horfi í laumi á lestarstjórann framundan mér. — Hvað hefur gerzt segi ég við sjálfan mig og rétti járnbrautarstarfsmanninum miðann minn. þú!“ Ég sé manninn færa sig nær. Hann rífur af mér miðann og þrífur í hálsmálið á mér, áður en mér vinnst tími til að draga andann; hann tekur mig steinbítstaki og keyrir mig á kné, opnar fyrstu dyr og rekur mig að næsta vagni, sem ofan á allt annað er vöruflutningavagn." Reykur liðast upp úr vindlingum doktorsins og málarans. »,Það var nístandi kalt í þessum andstyggðar- vagni. Ég gat hvergi setzt, og enn síður lagt mig út af og sofnað. Löng ferð var framundan. Ég hugsaði með mér, að ég hefði átt að veita honum viðnám, berjast, láta múginn gera út af við mig. En ef til vill var ég orðinn veik- byggður af að lifa í þessum heimi utanríkis- þjónustu og lítilla iðjuleysingja. — Nei, það er frekar það, að lestarstjórinn gaf mér ekki tíma til að opna munninn. Ég fann til þess, að ég hafði verið auðmýktur, og mér vöknaði um augun. En í þessu birtist sterklegur negri með barns- augu, einn þessara negra, sem vinna í vöru- ílutningavögnum. Hann kemur til mín bros- andi og segir: „Svona er þetta nú hérna. En vertu rólegur, bróðir minn. Þetta er ekkert. Við björgum þessu hvort sem er einhvern veginn við .. .“ Negrinn fór að draga til nokkra feiknarstóra kassa, fulla af Guð veit hverju, kom þeim fyrir réttum eða hvolfdi til að búa til eins konar rúm. Á kassana lagði hann svolítinn hálm, og dagblöð þar á ofan. Hann gerði mér eftir beztu getu kodda úr pappakössum og bauð mér gamlan frakka, hnappalausan og með dálítið trosnuðum erm- um. „Ég skal gefa þér að borða; það verður ekki mikið, en þú deyrð þó ekki úr hungri,“ sagði hann hughreystandi. Þegar allt er komið á sinn stað, sezt negrinn við hliðinaámér. Hann er gripinn mikilli tor- tryggni, leggur við hlustir, lítur áhyggju- fullur til hægri og vinstri. Þarna er enginn nema við tveir. Negrinn hvíslar í eyra mér: „Okkar á milli, núna þegar við erum hér einir, segðu mér satt — mér, sem er bróðir þinn. Hvar gaztu eiginlega stolið þessum lest- armiða, ha?“ (Þýtt úr tímaritinu „Révolution", 7. tbl., marz 1964, bls. 80 —81. Titill sögunnar á frönsku er „Entre nous, frerc noir".) birtingur 139
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.