Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2006, Page 105
103
Um líki í íslensku í ýmiss konar líki
(5) a. Vitrir öldungar sögðu að dýr byggjust dulargervi á ferðum sín-
um um mannheima en tækju sér mannlegt líki í eigin heim-
kynnum, því dýr, jurtir og ...
b. ... í anda Platóns. Hann er hin skapaða vera, meitluð á steðja
hins mikla skapara og ber hans líki.
c. Ég veldi mér fonixfjöður og þess vegna valdi ég hana fýrir
Harry! Hvaða líki þyrfti Boggi að taka á sig til að hræða þig?
d. Steypukarlinn á það til að breyta sér í margskonar líki, og rugl-
ar fólk oft í ríminni [svo!] með algerri steypu sem vellur upp úr
honum, og þess vegna ...
e. Músarbendillinn breyttist í alls konar líki — allt eftir því hvað
verið er að gera hverju sinni.
Liki sem sjálfstætt orð getur staðið með ýmsum ákvæðisorðum, sbr.
(4d-g), (5a) og (5d-e). Ákvæðisorðin sem hér um ræðir eru heilu,
'nannlegu, ýms, útvortis, mannlegt, margs konar og alls konar.
4-2 Líki í fasta orðasambandinu í líki einhvers
Einkennandi er fyrir fasta orðasambandið í líki einhvers að þar fínnur
maður ekki ákvæðisorð með líki, eins og ef um sjálfstætt orð væri að
ræða. Það bendir til þess að orðasambandið hafí smám saman verið
°rðasafnsgert (e. lexicalized) og sé ekki lengur móttækilegt fyrir þess
háttar breytingum. Eftirfarandi dæmi er m.a. að fínna í RMS (aldur og
heimild er gefín á eftir dæmunum):
(6) a. Kvaðir eru öngvar og ekkert í þeirra líki. 18f (Jarðab)
b. hann brá sér í ungs manns líki og beiddi stúlkunnar. 19m
(SkGSkv)
c. Var þess þá getið til, eftir þeirrar aldar trú, að Sólveig hefði í
líki konu hans opnað fyrir honum vegginn og grafíð hann þar,
en hann mundi hafa haldið sig sjá bæjardymar. 19s (THJs)
d. Þeir sem vilja ófrelsi í líki sósíalisma verða að sætta sig við
ófrelsi. 20s (ÓlHSímVatn)
við leit á veraldarvefnum fundust m.a. eftirfarandi dæmi: