Ritmennt - 01.01.1998, Qupperneq 73
RITMENNT
UPPHAF ÞJÓÐÓLFS 1848
einu sinni þegar Páll var um tveggja ára bil 1866-68 aðstoðarrit-
stjóri blaðsins í ritstjórnartíð Jóns Guðmundssonar.
Sú staðreynd að afmælisgreinin 1888 birtist þegar allir frum-
herjarnir við útgáfu Þjóðólfs og aðrir sem kunnu skil á upphaf-
inu voru fallnir frá virðist ekki hafa farið fyrir brjóstið á neinum.
Páll var ,sagnfræðingur' - hann var reyndar með lögfræðipróf -
og sögukennari sem hafði samið sögubækur, og hefur enginn ve-
fengt neitt af því sem hann skrifaði.
Samtímaheimild um upphaf Þjóðólfs
í desember 1848 birtist í Þjóðólfi grein eftir Sveinbjörn Hall-
grímsson um stofnun blaðsins.4 Greinin er hins vegar torskilin.
Þar segir m.a.:
Þegar jeg um þessar mundir heyrði, að eina tímaritið, sem vjer höfðum,
Reykjavíkurpósturinn, ætlaði að hætta, og það var fullyrt af einum ept-
ir annan - munu menn hafa haft það fyrir sjer, að þeir hafa vitað til þess,
að annar útgefandinn ætlaði að ganga úr skaptinu - hana nú, þá kom yf-
ir mig fítungsandinn, og hann bljes mjer í brjóst bæði löngun og áræði,
til að freista þess, hvort jeg mundi ekki geta haldið uppi tímariti svo
sem eitt ár. Og andinn, hvort heldur góður eða vondur, um það verður
heimurinn að dæma af ávöxtunum, þegar ritið kemur á gang, andinn
sagði mjer: „Gjörðu þetta, og gakktu ekki frá því"! Nú fór jeg þá að
hreifa máli þessu við mína líka, og fjekk einar fimm syndum spilltar
sálir í fylgi með mjer. Kveld eitt í kolsvarta myrkri hjeldu þá þessir 6
andar ráðsamkomu úti í gamla kirkjugarðinum í Reykjavík. Þar var
ákveðið hversu ritinu skyldi haga, og þar gaus Þjóðólfsnafnið upp und-
an einu leiðinu. Eklci er von, að allt sje hreint; því að svona er tímarit-
ið, Þjóðólfur, undir komið.
Þessi greinargerð Sveinbjarnar stríðir gegn frásögn Páls. Báðir
halda því frarn að þeir séu upphafsmennirnir. Önnur frásögnin
hlýtur því að vera röng.
Augljóst má vera að það stenst ekki að Þjóðólfsnafnið hafi gos-
ið upp undan einu leiðinu. Grein Sveinbjarnar er svar til ein-
hvers ,vinar' úr prestastétt sem ritað hefur honum og fárast yfir
því að hann skuli hafa sagt skilið við prestskap til að gefa út blað
þar sem „frjálsræðisandi blási slcrifendum í brjóst".5 Frásögn
4 Þjóðólfur 1:3 (10. des. 1848), bls. 13-15.
5 Þjóðólfur 1:3 (10. des. 1848), bls. 13.
Þjóðminjasafn Islands.
Sveinbjörn Hallgrímsson.
L