Ritmennt - 01.01.1998, Blaðsíða 81
RITMENNT
UPPHAF ÞJÓÐÓLFS 1848
unum, fuglinn í björgunum, grösin á heiðunum og garðstæðin
fyrir jarðeplin:
Vjer höfum, eins og hinar þjóðirnar, hina þrautgóðu sól, hinn þögula
mána [...] vjer höfum líka hjá oss gullreiðir norðurljósanna, sem hinar
þjóðirnar hafa ekki. [...] Getum vjer ekki rutt vegina, veitt vatninu af
engjunum, brúað yfir keldurnar, átt sjálfir kaupskip í förum?
Þetta fór greinilega fyrir brjóstið á ýmsum sem vanir voru hin-
um eldri blöðum. I desemberhefti Reykjavíkurpóstsins er birt
,innsend' grein þar sem vikið er að þeim þremur tölublöðum af
Þjóðólfi sem þá voru komin út. Hinurn nafnlausa höfundi finnst
meginhluti þessara blaða fullur af efnislausri óviðfeldinni mælgi
með óþarfa biblíuslettum og í smekklausum prédikunaranda,-
Þjóðólfur verði æfur útaf því að Reykjavíkurpósturinn segi að ís-
land drjúpi ekki af feiti og hunangi! En í stað þess að telja sjálf-
ur landinu nokkurn hlut til gildis hrúgi Þjóðólfur saman öllum
þeim skáldlegu orðatiltækjum um það sem hann hefur heyrt á
ævi sinni, komi með allrahanda óumræðilegar smekkleysur eins
og t.a.m. guð leit allt hvað hann hafði gjört, og sjá það var yfrið
gott og enda ísland líka. En þó taki steininn úr þegar ritstjórinn
í þriðja blaðinu fari að segja almenningi frá sjálfum sér og fylli
meira en hálfa þriðju blaðsíðu með því að tala um sína eigin per-
sónu.20
Eitt er víst: Hinn almenni lesandi kunni vel að meta hinn per-
sónulega og gáskafulla stíl Sveinbjarnar sem var nýjung í ís-
lenskri blaðaútgáfu.
Samstarfsmenn Sveinbjarnar
Þótt þannig sé orðið ljóst að Sveinbjörn var upphafsmaður Þjóð-
ólfs þá naut hann liðsinnis annarra. Prentararnir í Prentsmiðju
landsiirs, Helgi Helgason og Einar Þórðarson, og Egill Jónsson
bókbindari urðu útgefendur og kostnaðarmenn fyrsta árgangs
Þjóðólfs en Sveinbjörn ábyrgðarmaður. Eru nöfn þessara fjögurra
manna nefnd í Þjóðólfi.21
20 Reykiavíkurpósturinn 3:3 (desember 1848), bls. 43-44.
21 Myndir af þessum mönnum eru birtar hér að því undanskildu að engin mynd
mun vera til af Helga Helgasyni. Mynd sú sem birt er með æviágripi hans í
Bókagerðarmönnum (Reykjavík 1976) er af Helga E. Helgasen (1831-90)
skólastjóra Barnaskólans í Reykjavík.
Pjóðminiasafn íslands.
Einar Þórðarson prentari.
77