Ritmennt - 01.01.1998, Síða 129
RITMENNT
DAGBÆKUR í HANDRITADEILD LANDSBÓKASAFNS
það gjarnan fyrir hirðusemi handritasafnara eða hreina tilviljun
að úr fórum þeirra slæðast dagbækur „minniháttar" manna.
Gott dæmi um það er dagbókarbrot vinnumanns úr Eyjafirði
sem fylgdi með ýmsum skrifum Þorsteins Þorsteinssonar, bónda
og trésmiðs á Upsum í Svarfaðardal, í geymslur handritadeildar.
Björn Jónsson hafði verið vinnumaður hjá Þorsteini, en í vist
sinni á Ysta-Bæ í Hrísey hélt hann dagbók uns hann sigldi til
Noregs að leita sér bótar á holdsveiki.35 Líkt og í dagbók Bene-
dikts Sveinssonar eru færslurnar nokkuð almenns eðlis en ekki
mjög lýsandi fyrir kjðr og stöðu vinnufólks í samfélagi 19. aldar.
Sama má segja um dagbókarbrot Björns Gunnlaugssonar
(1846-95) á Gunnarsstöðum í Þistilfirði frá fyrstu mánuðum árs-
ins 1867, í allt 14 blaðsíður. Þar eru stuttar, daglegar færslur um
veður, skepnuhöld og búskap, efni tengt bænum en ekki Birni
sjálfum.36
Nýjar stéttir
Eftir því sem á 19. öldina leið bættust nýjar stéttir í hóp dag-
bókarritara og er það bæði til marks um aukna útbreiðslu skrift-
arlcunnáttu en ekki síður um breytta atvinnuhætti og búsetu.
Undir aldamót má sjá ritara úr hinum ört vaxandi þéttbýlisstöð-
um, sjómenn, iðnaðarmenn og verkamenn, og þá blanda konur
sér fyrst í leikinn. Meðal dagbólca þessa hóps má finna nokkrar
hinar merkilegustu sem jafnframt eru efnismiklar og ná yfir
langt tímabil. Magnús Kristjánsson trésmiður í Ólafsvík (1875-
1963) hélt dagbók í 59 ár, frá 18 ára aldri til dauðadags.37 Hann
ólst upp í sveit en lærði trésmíði í Ólafsvílc um tvítugsaldur og
stundaði þar iðn sína. Dagbókin er ítarlegri en gengur og gerist
því auk daglegra viðburða bregður fyrir hugleiðingum um einlca-
og tilfinningamál. Þá skrifaði Magnús gjarnan minningargreinar
um sér nákomna. Þótt Magnús hafi skilið eftir sig átján bindi
dagbóka sem náðu yfir tæpa sex áratugi gerði Finnbogi Bern-
ódusson (1892-1980), sjómaður í Bolungarvílc, enn betur, svo
35 ÍB 475 4to - Dagbók Björns Jónssonar vinnumanns á í Ysta-Bæ Hrísey
1853-59. Dagbækur Þorsteins sjálfs eru einnig til, ÍB 842 8vo - Almanök með
minnisfærslum Þorsteins Þorsteinssonar 1861-67.
36 Lbs 3003 8vo - Dagbókarbrot Björns Gunnlaugssonar 1867.
37 Lbs 3994-4011 4to - Dagbók Magnúsar Kristjánssonar 1894-1963.
123