Íslenskt mál og almenn málfræði - 13.07.1981, Page 206
196 Magnús Pétursson
í japönsku umrituninni eru atkvæðin [ha, he, <Þui, ?i] á undan lokhljóð-
inu rituð með smærra letri, en það á sennilega að gefa til kynna, að þau
séu veikari í framburði en nálæg atkvæði og gefa þannig japanska les-
andanum hugmynd um íslenzka framburðinn.
Lokaorð
Markmið þessarar stuttu greinar var að vekja athygli á því, hve mikil
þau vandamál eru, sem sumir útlendingar þurfa að sigrast á, þegar þeir
leggja sig eftir íslenzkum framburði. Einnig var markmið að sýna ís-
lendingum í ljósi japönsku umritunarinnar, hverju íslenzk hljóð líkjast
í eyrum Japana. Það hefur til þessa ekki farið fram nein rannsókn á því,
hvemig íslenzk hljóð eru skynjuð meðal málhafa erlendra mála og
þekking þar að lútandi er af skornum skammti. Samt er hún ákaflega
mikilvæg, þegar um er að ræða að kenna útlendingum góðan íslenzkan
framburð. Af umritun íslenzkra orða samkvæmt framburði annars er-
lends máls, má fá um þetta atriði nokkra hugmynd.
Athyglisvert er í þessu riti, að reynt er að fara eins nærri íslenzkum
framburði og mögulegt er. Ekki er því um að ræða hreina umstöfun
nema að takmörkuðu leyti. Bent hefur verið á nokkurt ósamræmi í fá-
einum atriðum, en úr því er hægt að bæta á tiltölulega auðveldan hátt,
ef bókin verður gefin út aftur. Möguleikar japanska hljóðkerfisins eru
ekki alveg að fullu nýttir í öllum tilfellum. í öðrum tilfellum verður að
grípa til þess að breyta hljóðgildi japönsku táknanna til að ná frambæri-
legri líkingu við íslenzkan framburð. Þannig er það með [v] og [h] +
samhljóð.
Því má ekki gleyma, að þótt þessi bók sé fyrst og fremst ætluð að
vera handbók fyrir japanska ferðamenn, sem fara til íslands, þá er hún
einnig umtalsvert framlag til íslenzkrar hljóðfræði.
Friedrich-A lexander- Un iversitat
Erlangen-Niirnberg
RITASKRÁ
Foljanty, Detlef: Japanisch Intensiv I (Helmut Buske Verlag, Hamburg 1979)
Hattori, Shirö: Onseigaku (Tokyo 1963)
Intensive Course in Japanese I, II (Language Services Co., Tokyo 1970)
Lewin, Bruno: Kleines Wörterbuch der Japanologie (Otto Harrassowitz, Wiesbaden
1968)