Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 44

Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Page 44
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 201144 „bara ef maðUr hefði sett meiri kraft í þetta“ standa einir eftir þegar samnemendur útskrifuðust og ekki hafa haft tækifæri til að kynnast öðrum í svipuðum sporum. Brotthvarfsnemarnir sjö sem rætt var við náðu ágætum árangri í háskólanámi sínu og álitu sig hafa verið nokkuð vel undirbúna fyrir háskólanám. Þeim gekk að eigin sögn vel í framhaldsskóla en almennt ber rannsóknum saman um að námsárangur í framhaldsskóla spái fyrir um gengi í háskólanámi (sjá t.d. Johnson, 2006; Jón Torfi Jónasson og Kristjana Stella Blöndal, 2005; McKenzie og Schweitzer, 2001). Athyglis- vert er að þeir töldu engu að síður að vinnubrögðum sínum hefði verið ábótavant og virðist það einkum hafa komið niður á þeim þegar þeir þurftu að sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð í BA-verkefni. Þegar horft er til afleiðinga brotthvarfs fyrir þróun náms- og starfsferils þessara einstaklinga virðast þær ekki alvarlegar fyrir núverandi starf. Allir viðmælendur að einum undanskildum voru í starfi og flestir þeirra voru nokkuð sáttir, jafnvel í þeim tilvikum þegar störfin tengdust ekki menntun þeirra. Athygli vekur að fjórir þeirra töldu að gerð væri krafa um háskólamenntun í núverandi störfum en horft hefði verið fram hjá því við ráðningu að þeir höfðu ekki lokið námi. Þótt þátttakendur væru nokkuð ánægðir í núverandi störfum töldu þeir sig hafa takmarkaða möguleika á vinnumarkaði. Þeir voru allir á einu máli um mikilvægi þess að hafa háskólagráðu í nútímaþjóðfélagi og orðuðu það sem svo að ,,háskólagráðan myndi opna dyr að fleiri mögulegum störfum“ og gera þeim kleift að þróa starfsferil sinn. Einnig virðist brotthvarf úr námi hafa haft mikil áhrif á þróun námsferils hjá þessum einstaklingum því enginn þeirra hefur farið í frekara nám á þeim tíma sem liðinn er síðan þeir voru virkir nemendur við Háskóla Íslands. Þeir höfðu þó allir hug á að mennta sig frekar og horfðu þá einkum til meistaranáms. Það virðist hafa haft nokkuð mikil áhrif á sjálfsmynd og almenna líðan þátttak- enda að hafa ekki lokið háskólanáminu. Þeir höfðu mikla sektarkennd yfir því og töluðu um það sem markmið sem þeir hefðu ekki náð eða ,,ólokið verkefni“. Þeim fannst þeir hafa brugðist sjálfum sér, fjölskyldum sínum og jafnvel vinnuveitendum í þeim tilvikum þar sem þeir voru ráðnir á þeim forsendum að þeir myndu ljúka námi samhliða starfi. Þeir áttu því erfitt með að svara spurningum um menntun sína og gripu jafnvel til þess ráðs að segjast hafa lokið háskólanámi. Í rannsókn Jóhönnu Rósu Arnardóttur (2003) komu fram sambærilegar niðurstöður þar sem fólki fannst skipta miklu máli fyrir sjálfsöryggi að geta sagt ,,ég er …“ og vísa síðan í ákveðið starfsheiti. Alvarlegast er að brotthvarfið virðist hafa haft þær afleiðingar, líkt og komið hefur fram hjá yngra fólki sem hefur horfið frá námi á framhaldsskólastigi (Ágústa Björns- dóttir; 2007; Kristjana Stella Blöndal og Jón Torfi Jónasson, 2002), að viðmælendur hafi litla trú á eigin getu í námi. Þeir hafa einnig áhyggjur af því að leiðbeinandi þeirra við ritgerðarskrifin hafi misst trú á þeim. Athyglisvert er að þetta gerist þó að þeir hafi staðið sig vel í námi að öllu öðru leyti en því að ljúka lokaritgerð og útskrifast. Í þessari rannsókn var rætt við sjö einstaklinga af tveimur fræðasviðum Háskóla Íslands. Það vekur upp spurningar um hvort hægt sé að heimfæra niðurstöður hennar upp á nemendur sem stunda nám á öðrum fræðasviðum. Ef til vill eiga niðurstöður hennar síður við um þá sem eru í starfstengdu námi og hafa skýrari markmið þar sem prófgráðan og jafnvel löggilding í kjölfar hennar er aðgöngumiði að starfi. Jafnframt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.