Læknablaðið - 15.04.1996, Side 75
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
327
Ráðstefna um ofvirkni
problems and interpersonal
relationships, (b) trained „aux-
iliary egos“ who play supportive
roles representing significant
individulas in the dramatized
situations and a director or
therapist, who guides this
process and leads an interpretive
session when it is completed.
Various special techniques are
used to advance the therapy, am-
ong them exchanging roles, soli-
loquy, enactment of dreams,
and hypnotic dramatizations. “
Á námskeiðinu verður unnið
með tjáskipti, óræða tjáningu
og þá sérhæfingu psykodrama,
sem nefnist Doubleteknik eða
pacing inom NLP. Kynnt verður
fjölskylduvinna, meðal annars
vinna með fleiri kynslóðir, sorg-
arvinna og unnið með tengsl
eintaklinga, bæði innávið og út-
ávið (intra- och interpersonell).
Möguleikar verða á handleiðslu
með mál, sem þátttakendur
leggja fram.
Námskeiðið verður haldið á
barna- og unglingageðdeildinni
við Dalbraut, og stendur dag-
lega frá 09:00-16:00. Tekið
verður á móti umsóknum um
þátttöku í síma 560 2500.
Þátttökugjald verður krónur
9.000. Þátttakendafjöldi tak-
markast við 25. Ef aðsókn verð-
ur meiri ganga þeir fyrir, sem
hafa greitt þátttökugjald.
Greiðslu er hægt að inna af
hendi með greiðslukortum,
einnig í gegnum síma.
Russel A. Barkley, einhver
helsti fræðimaður Bandaríkj-
anna um ofvirkni, mun verða á
íslandi 3. júní næstkomandi.
Hann mun þann dag verða með
eins dags ráðstefnu í samvinnu
við Barnageðlæknafélag íslands
og Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans. Dr. Barkley hef-
ur um nokkurra ára bil átt sam-
vinnu við BUGL.
Umræður á íslandi hafa ein-
kennst nokkuð af því að menn
hafa notað mismunandi hugtök
yfir skyld fyrirbæri án þess að
skilgreina fyllilega merkingu
þeirra. Þannig hafa hugtökin of-
virkni, misþroski, athyglisbrest-
ur, MBD og DAMP verið áber-
andi án þess að merking þeirra
væri alltaf nægilega aðgreind.
Annað atriði sem flækt hefur
málið er mismunur á skilningi
evrópskra og bandarískra fræði-
manna á ofvirkni þar sem skil-
greining hinna fyrrnefndu hefur
verið mun þrengri.
Það er orðið ljóst að þessar
truflanir haldast oft fram á full-
orðinsár þótt því atriði hafi ekki
verið veitt athygli hingað til.
Margskonar raskanir fullorð-
inna (til dæmis geðsjúkdómar,
fíkni og afbrot) grundvallast að
verulegu leyti á eðlisþáttum at-
hyglisbrests, ofvirkni og mis-
þroska.
Skilningur á ofvirkni, mis-
þroska og athyglisbresti er
grundvöllur fyrirbyggjandi
vinnu með börn. Þessar truflan-
ir eru eðlislægar, en fjöldamargt
er hægt að gera til að draga úr
skaðsemi þeirra. Nú þegar er
orðið greinilegt hvernig æski-
legt er að vinna að því að hindra
að þessir eðlisþættir verði að
viðvarandi fötlun. Fjöldi aðila
þarf að vinna saman við for-
varnirnar; heilbrigðiskerfi,
skólar, félagsmálastofnanir og
dómskerfi þurfa að leggast á eitt
í framtíðinni.
Russel A. Barkley er fæddur
1949 og er prófessor í geðlækn-
ingum og taugasjúkdómum við
Háskólann í Masssachusetts.
Hann veitir forstöðu alhliða
göngudeildarstarfi fyrir ofvirka
og misþroska í Worcester í Mas-
sachusetts, hefur gefið út fjölda
bóka og skrifað ótal greinar auk
þess sem hann hefur verið mjög
eftirsóttur fyrirlesari víða um
lönd. Hann hefur komið fram
ótal sinnum í fjölmiðlum og
ekki síst fjallað um ofvirkni, at-
hyglisbrest, námsörðugleika,
aðstandendaþjálfun og lyfja-
meðferð, til dæmis í Today’s
Show á NBC, 60 Minutes á CBS
auk þess sem Newsweek, Time,
New York Times og fjöldi ann-
arra rita hafa fjallað um kenn-
ingar hans, rannsóknir og störf.
Dr. Barkley mun á ráðstefn-
unni fjalla um fjölbreyttar hlið-
ar athyglisbrests og ofvirkni,
bæði hjá börnum og fullorðnum
auk þess sem hann mun fjalla
um þá þjónustu sem þörf er á.
Ráðstefnan verður frá kl.
09:00-16:30 niánudaginn 3. júní
næstkomandi á barna- og ung-
lingageðdeildinni við Dalbraut
12. Þátttökugjald verður krónur
9.000. Nú þegar er mögulegt að
panta þátttöku í síma 560 2500.
Athygli skal vakin á að fjöldi
þátttakenda verður takmarkað-
ur. Ef aðsókn verður mikil
ganga þeir fyrir sem hafa greitt
þátttökugjald. Greiðslu er hægt
að inna af hendi með greiðslu-
kortum við pöntun í síma.