Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1996, Page 75

Læknablaðið - 15.04.1996, Page 75
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 327 Ráðstefna um ofvirkni problems and interpersonal relationships, (b) trained „aux- iliary egos“ who play supportive roles representing significant individulas in the dramatized situations and a director or therapist, who guides this process and leads an interpretive session when it is completed. Various special techniques are used to advance the therapy, am- ong them exchanging roles, soli- loquy, enactment of dreams, and hypnotic dramatizations. “ Á námskeiðinu verður unnið með tjáskipti, óræða tjáningu og þá sérhæfingu psykodrama, sem nefnist Doubleteknik eða pacing inom NLP. Kynnt verður fjölskylduvinna, meðal annars vinna með fleiri kynslóðir, sorg- arvinna og unnið með tengsl eintaklinga, bæði innávið og út- ávið (intra- och interpersonell). Möguleikar verða á handleiðslu með mál, sem þátttakendur leggja fram. Námskeiðið verður haldið á barna- og unglingageðdeildinni við Dalbraut, og stendur dag- lega frá 09:00-16:00. Tekið verður á móti umsóknum um þátttöku í síma 560 2500. Þátttökugjald verður krónur 9.000. Þátttakendafjöldi tak- markast við 25. Ef aðsókn verð- ur meiri ganga þeir fyrir, sem hafa greitt þátttökugjald. Greiðslu er hægt að inna af hendi með greiðslukortum, einnig í gegnum síma. Russel A. Barkley, einhver helsti fræðimaður Bandaríkj- anna um ofvirkni, mun verða á íslandi 3. júní næstkomandi. Hann mun þann dag verða með eins dags ráðstefnu í samvinnu við Barnageðlæknafélag íslands og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Dr. Barkley hef- ur um nokkurra ára bil átt sam- vinnu við BUGL. Umræður á íslandi hafa ein- kennst nokkuð af því að menn hafa notað mismunandi hugtök yfir skyld fyrirbæri án þess að skilgreina fyllilega merkingu þeirra. Þannig hafa hugtökin of- virkni, misþroski, athyglisbrest- ur, MBD og DAMP verið áber- andi án þess að merking þeirra væri alltaf nægilega aðgreind. Annað atriði sem flækt hefur málið er mismunur á skilningi evrópskra og bandarískra fræði- manna á ofvirkni þar sem skil- greining hinna fyrrnefndu hefur verið mun þrengri. Það er orðið ljóst að þessar truflanir haldast oft fram á full- orðinsár þótt því atriði hafi ekki verið veitt athygli hingað til. Margskonar raskanir fullorð- inna (til dæmis geðsjúkdómar, fíkni og afbrot) grundvallast að verulegu leyti á eðlisþáttum at- hyglisbrests, ofvirkni og mis- þroska. Skilningur á ofvirkni, mis- þroska og athyglisbresti er grundvöllur fyrirbyggjandi vinnu með börn. Þessar truflan- ir eru eðlislægar, en fjöldamargt er hægt að gera til að draga úr skaðsemi þeirra. Nú þegar er orðið greinilegt hvernig æski- legt er að vinna að því að hindra að þessir eðlisþættir verði að viðvarandi fötlun. Fjöldi aðila þarf að vinna saman við for- varnirnar; heilbrigðiskerfi, skólar, félagsmálastofnanir og dómskerfi þurfa að leggast á eitt í framtíðinni. Russel A. Barkley er fæddur 1949 og er prófessor í geðlækn- ingum og taugasjúkdómum við Háskólann í Masssachusetts. Hann veitir forstöðu alhliða göngudeildarstarfi fyrir ofvirka og misþroska í Worcester í Mas- sachusetts, hefur gefið út fjölda bóka og skrifað ótal greinar auk þess sem hann hefur verið mjög eftirsóttur fyrirlesari víða um lönd. Hann hefur komið fram ótal sinnum í fjölmiðlum og ekki síst fjallað um ofvirkni, at- hyglisbrest, námsörðugleika, aðstandendaþjálfun og lyfja- meðferð, til dæmis í Today’s Show á NBC, 60 Minutes á CBS auk þess sem Newsweek, Time, New York Times og fjöldi ann- arra rita hafa fjallað um kenn- ingar hans, rannsóknir og störf. Dr. Barkley mun á ráðstefn- unni fjalla um fjölbreyttar hlið- ar athyglisbrests og ofvirkni, bæði hjá börnum og fullorðnum auk þess sem hann mun fjalla um þá þjónustu sem þörf er á. Ráðstefnan verður frá kl. 09:00-16:30 niánudaginn 3. júní næstkomandi á barna- og ung- lingageðdeildinni við Dalbraut 12. Þátttökugjald verður krónur 9.000. Nú þegar er mögulegt að panta þátttöku í síma 560 2500. Athygli skal vakin á að fjöldi þátttakenda verður takmarkað- ur. Ef aðsókn verður mikil ganga þeir fyrir sem hafa greitt þátttökugjald. Greiðslu er hægt að inna af hendi með greiðslu- kortum við pöntun í síma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.