Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.1996, Page 93

Læknablaðið - 15.04.1996, Page 93
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 341 Bókanir TR og LR 1. Samninganefndirnar telja eðlilegt að heilbrigðisstjórn- in beiti sér fyrir því að stofn- anir, sem reknar eru fyrir fjárframlög frá hinu opin- bera og leigja læknum að- stöðu og endurgjald er mið- að við hlutfall af tekjum, taki við ákvörðun leigugjalds mið af afslætti, sem læknir kann að veita sjúkratryggingun- um, svo og skerðingu sam- kvæmt samningi þessum. 2. Með vísan til 4. gr. samnings þessa er það skoðun samn- ingsaðila, að við endur- ákvörðun á heildareininga- fjölda læknisverka sam- kvæmt þessum eða nýjum samningi sé meðal annars lit- ið til: a. Breytinga á fólksfjölda og aldursdreifingar á reikni- tímabilinu, b. nýrra læknisverka, c. breytinga á ferliverkum, d. breytinga á starfsháttum sjúkrahúsa, sem leiða til breyttra læknisverka utan sjúkrahúsa, e. breytinga á greiðsluþátt- töku sjúkratrygginga. 3. Á samningstímanum skal samráðsnefnd aðila endur- skoða greiðslur vegna rann- sókna og aðgerða, sem krefj- ast dýrra og viðkvæmra tækja og eru í eigu lækna. Niðurstaða samráðsnefndar skal lögð fyrir samninga- nefndir aðila til endanlegrar afgreiðslu. 4. Á samningstímanum skal stefnt að því, að fyrirtæki, sem eru alfarið í eigu sér- fræðinga, er við það starfa og hafa heimild til að vinna eftir samningi þessum, skuli vera heimilt að senda TR reikn- inga fyrir verk sem unnin eru samkvæmt samningi þess- um. Einstakir reikningar skulu þá eftir sem áður merktir viðkomandi lækni. Þessi reikningsskilamáti skal í engu breyta stöðu læknis gagnvart sjúkratryggðum og TR. 5. Aðilar eru sammála um, að einingar einstakra röntgen- lækna, sem starfa eftir samn- ingi þessum, falli undir heildareiningafjölda vegna rannsókna samkvæmt 4. gr. Verði breytingar á rekstrar- formi rannsóknadeildar Landakots skal samráðs- nefnd aðila samnings þessa endurskoða heildareininga- fjölda vegna rannsókna sam- kvæmt 4. gr. 6. Eftir ársfjórðungslegt upp- gjör reikninga sérfræðinga skal TR jafnframt skila sam- ráðsnefnd aðila yfirliti yfir heildareiningafjölda rann- sóknalækna og klínískra sér- fræðinga fyrir reikningstíma- bilið. Skal það flokkað eftir sérgreinum og eftir því hvort verk eru unnin á stofnun eða ekki. Yfirliti þessu skal fylgja sambærilegt yfirlit síð- asta árs eftir því sem kostur er. Einnig skal stefnt að því, að einstök læknisverk verði flokkuð á svipaðan hátt. 7. Samninganefndir TR og LR eru sammála um, að í samn- ingi á milli aðila, dags. 12. janúar 1995, um viðskipti Læknisfræðilegrar mynd- greiningar ehf. kom gjaldlið- ur um segulómrannsóknir (MRI) ekki til sérstakrar umræðu á milli aðila. í samn- ingi þessum er ekki tekin af- staða til samnings aðila vegna Læknisfræðilegrar myndgreiningar ehf. Aðilar eru sammála um að skjóta máli varðandi segulómrann- sóknir (MRI) til gerðar- dóms, sem úrskurði í mál- inu. Bókun LR Það er forsenda LR fyrir samningi þessum að frestun uppsagna einstakra lækna gildi áfram, samanber bréf formanns samninganefndar LR og for- manns Sérfræðingafélags ís- lenskra lækna um frestun gild- istöku reglugerða nr. 81 og 82 frá 1995 til forstjóra TR, dags. 26. apríl 1995. Bókun TR Það er stefna Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, að útgjöld vegna ferliverka á árinu 1996 verði að minnsta kosti 20 milljónum krónum lægri en út- gjöld vegna ferliverka á árinu 1995. Yfirlýsing formanns LR Það er skilningur undirritaðs, að þeir sérfræðingar sem óska eftir að starfa samkvæmt samn- ingnum og hyggjast vera með hefðbundinn stofurekstur fái heimild til þess. Ég tel viðbótarafslátt sam- kvæmt3. mgr. 4. greinartryggja að fullu að útgjöld sjúkratrygg- inganna aukist ekki þó að þeim fjölgi, sem starfa samkvæmt samningnum. Fylgiskjal með samningi um sérfræðilæknishjálp, dags. 7. mars 1996 Opinberar stofnanir og stofnanir, sem fá fjárframlög frá opinberum aðilum AUar heilsugæslustöðvar Öll sjúkrahús Öll elli-, hjúkrunar- og dvalarheimili Heiðarbraut 32, Akranesi (lækna- bústaður) Heyrnar- og talmeinastöð fslands Heilsuverndarstöð Reykjavíkur Krabbameinsfélag íslands NLFÍ Reykjalundur Sjónstöð íslands Suðurgata 44, (húsnæði St. Jósefs- spítala, Hafnarfirði) Aðrar sambærilegar stofnanir sam- kvæmt úrskurði samráðsnefndar að- ila
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.